Thursday, 2 October 2008

Hola






Jæja þá er yngsti meðlimur Rósbergs fjölskyldunnar mættur aftur til London eftir dásamlega vikuferð í faðmi fjölskyldunnar á sunny Mallorca. Vá hvað það var yndislegt að liggja á ströndinni, taka sundsprett í tærum sjónum eða horfa á krakkana byggja sér kastala og busla í flæðarmálinu. Ég reikna með að hinir 9 ferðafélagarnir lendi á Akureyri einhverntíman í dag eða með hepppni á morgun!!! Það var alveg svakalega gott að skella sér í svona fjölskyldu strandarferð eftir öll lætin hérna í London þar sem þar virðist hafa komið aðeins í bakið á mér að hafa dásamað London í síðustu færslu því fjórum dögum áður en ég skilaði lokaverkefninu koma ég að tómum kofanum í orðsins fyllstu merkingu þar sem búið var að brjótast inn og stela öllum smærri rafmagnstækjum og skartgripum heimilismeðlima, þar á meðal tölvunni minni. Sem betur fer var ég nýbúin að vista ritgerðina á usb lykil sem þjófarnir tóku ekki með sér. Í kjölfarið fylgdu endalaus samskipti við lögregluna, skýrslur og csi-fingrafararannsókn þar sem fingraför heimilismeðlima var m.a. sent til Scotland Yard. Já já ég tók nú einn veikindadag yfir þessu öllu saman þar sem ég lá flöt á sófanum, þar sem ekki mátti snerta neitt til að spilla fingraförum, og hugsaði um alla þá vinnu sem horfin væri með tölvunni minni, öllum myndunum og þeim tilfinningalegum verðmætum sem fylgdu skartgripunum sem vegur meira en fjárhagslegt tap. En svona er lífið, sem betur fer á ég endalaust góða að og Stella systir lánaði mér tölvuna sína svo nú er ég nettengd aftur og get farið að panta skipsfar heim fyrir það litla dót sem eftir er! og Milla er búin að bjóðast til að koma í vinnuferð til Akureyrar til að klára húsið þar sem ekki er víst að ég geti borgað iðnaðarmönnum mikið meir þar sem bankinn minn er ekki í góðum málum.
Þakka fyrir allar góðu kveðjurnar.
Yfir og út, Sonja Stelly Rósberg Gústafsdóttir

4 comments:

Anonymous said...

Velkomin heim frá Majó :-) Hlakka til að fá þig heim þó svo að skútan sé að sökkva. Ekkert vit að vera í UK þegar GPB kostar 200 kall.

Anonymous said...

Uff ömurlegt, og óþægileg tilfinning, en gott að það var notó á mallorca, um að gera að horfa á björtu hliðar lífsins það er miklu skemmtilegra. Hlakka til að sjá þig knús DB

Kristin said...

en ömurlegt! en jæja... ekki þýðir að gráta Björn bónda... eitthvað svoleiðis... nú er orðið rosa stutt í að þú komir á eyrina og ég vil gjarnan hjálpa til líka í húsinu! ;)

Anonymous said...

Sonja en ömurlegt að enda London dvöl svona leiðinlega helv.. krimar.
Kristín Björg