Thursday, 18 September 2008

London



Þá er nú góður dagur að baki. Vann í ritgerðinni í morgun og eftir hádegið fórum við til Victoria and Albert museum í South Kensington og skoðuðum marga merkilega gripi. Ég verð nú bara að hrósa söfnum í London varðandi aðgengi, fjölbreytileika og skipulag. Skelltum okkur svo til Covent Garden í kvöldmat á Belgískan skað sem var svolítið skemmtilegur, með opið eldhús og það þurfti að taka eldgamla lyftu til komast niður að borðunum og það skemmtilegasta er að á milli klukkan 5 til 6.30 á daginn þá er hægt að panta af matseðli og þú borgar þá upphæð sem kvittunin segir til um klukkan hvað þú pantaðir matinn.......svo ef þú pantar mat klukkan 5 þá borgar þú bara 5 pund! Ætluðum svo að fara að horfa á Midsummer night dream eftir Shakespeare en þá var nú bara uppselt svo við förum í staðinn á morgun. Ég verð nú bara að viðurkenna að eftir að hafa labbað í kvöld yfir Millenium brúnna í rökkrinu í mildri september golunni, að mér þykir pínu vænt um London........þetta er ótrúleg borg sem hefur upp á svo ótalmargt að bjóða.............þeim mun meira sem ég skoða borgina sé ég fallegri, merkilegri og skemmtilegri hluti en ég bjóst við :)



Á laugardaginn stefni ég á að klára ritgerðina! Á sunnudaginn verður kveðjuveisla fyrir Bilal sem er að fara aftur til Sýrlands og ætlum við að halda upp á það í Windsor kastalanum. Á mánudaginn ætla ég að prenta út ritgerðina. Á þriðjudaginn ætla ég að afhenda ritgerðina. Á miðvikudaginn ætla ég til Mallorca ;)

6 comments:

Anonymous said...

sounds like a plan to me!

Anonymous said...

til hamingju sonja, you rock!!!
stendur thig eins og hetja:)

Anonymous said...

Frábært að heyra, sem sé í dag ertu að prenta út ritgerðina þína, Vá hvað þú ert dugleg, til hamingju og skemmtu þér ofurvel á Mallorca:) knús Dagga og co

Anonymous said...

Flott plan hjá þér Sonja mín, reikna með að þú sért að afhenda ritgerðina þína í dag....TIL HAMINGJU. Góða skemmtun á Mæjó :) Risaknús frá öllum á Bárugrandanum.

Anonymous said...

Til hamingju og góða skemmtun á Mallorca. Chao bella xx Kristín Björg

Kristin said...

Elsku Songó pongó;) innilega til hamingju með að vera BÚIN að skila ritgerðinni;) reikna með að þú sért á sunní mæjorka núna;) hlökkum til að sjá þig;) knús og kveðjur frá Stínu, Hauki, Hönnu Marín og Elísu Hildu