Þegar maður er frægur þá getur maður víst látið bíða eftir sér................þið sem eruð ekki jafn mikið inni í tískunni eins og ÉG vitið sennilega ekki að nú stendur yfir tískuvika hér í London. Við hýstum einn helsta frömuð kínverska Vogue tímaritsins á dögunum og í kjölfarið fengu íbúðarfélagar mínir það hlutverk að taka viðtal við Kate Moss í dag. Þau áttu að vera mætt í hús kl 9 í morgun sem þau og gerðu.....................klukkan 5 pm var viðtalið ekki enn í höfn! Ég reikna með þeim til baka kannski fyrir miðnætti. Já já svona er að vera þræll tískunnar, það eru ekki bara hælsæri og svengd sem fylgir þessu heldur greinilega slatti af biðlund.
Minn helsti tískuráðgjafi benti mér á að kannski væri kominn tími á að ég segði skilið við eiturgrænu adidas hettupeysuna sem ég er búin að klæðast all oft.......kannski líka spurning hvort ég skelli mér í litun og plokkun þar sem það hefur nú aldrei talist aðlaðandi að vera andlitslaus og sjálfsagt mundi ein umferð af Ásgeiri Kolbeins ekki heldur skaða.............svona til að valda ekki gífurlegu endurkasti á ströndinni og skaða augun á saklausum ferðalöngum.
Tuesday, 16 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Ha voru Nedia og hennar maður að taka viðtal við Kate Moss what, how???
hhehehe ...ég held að á 12 tímum hafi þau náð í heildina 10 mínútum af efni frá öllum nema stjörnunni sjálfri....loksins þegar tökum lauk voru allir svo þreyttir og nenntu ekki að veita viðtöl!
Sonja mín...af hverju viltu vera með svart hár, svartar augabrýr og appelsínugul á litinn? Þá held ég að endurskinið fari þér betur í sandinum ;-)
Brennd leðursófasett eru heldur ekki vinsæl á ströndinni! Náttúrufegurðin er "inn" í dag! ...hvað svo sem það er...
Post a Comment