Sunday, 14 September 2008

Ó

trúlegt en satt...veðurspáin fyrir næstu daga bendir til þess að það eigi ekki að koma dropi úr himninum a.m.k. fram á fimmtudag ;) nicccccce.......og það var bara magnað veður í dag, notalegt í sólinni. Aðrar góðar fréttir eru þær að fóturinn á mér er á batavegi......enn töluverðir verkir í honum en með því að fara út að labba á hverjum degi er hann að ´endurhæfast´..heheheh....
Dreymdi vinkonur mínar Völvu og Bebbu sl nótt og stráka þeirrar síðarnefndu...ég var að hafa áhyggjur af því að geta ekki munað nöfnin á öllum þeim börnum sem væru í kringum mig, sérstaklega þeim sem hafa fæðst sl ár. Tengi þetta beint við sms sem ég fékk um að tvíburarnir A og B væru komnir með nöfnin Gunnar Óli og Hilmir Steinn......við þetta bætast svo Góa, Ísabella Eygló og Elísa Hilda og svo eiga nú allavegana tvö börn eftir að fæðast á þessu ári.
Hey, hver kann að búa til efnisyfirlit fyrir töflur og myndir?.....skil ekki alveg !
Hlakka svoooooooooo til að sjá ykkur í október ;)

5 comments:

Anonymous said...

já mikið að muna... ég er nokkuð komin með nöfnin á börnunum í kringum mig á hreint en afmælisdagar þeirra flækjast fyrir mér... en hvað kom fyrir fótinn? fór það alveg fram hjá mér?

Unknown said...

Bíddu er strákar A og B Bebbu og Gunnarsynir? Eru þeir fæddir?

Unknown said...

oohh átti ekki að koma undir stodulfell heldur Kristín van de Netherland

Anonymous said...

Já það er mikið á mann lagt að læra öll þessi nöfn á gamalsaldri...segi svo eins og Stína að afmælisdagarnir eru muun verri en nöfnin.

Anonymous said...

Hí hí þið eruð dúllur, mæli með afmælisdagabókum og svo fyrir nörda eins og mig, setja þetta inn í símann sinn, bara í dauða tímanum....hehehe Þá man mar allt :)