Jæja nýjust fréttir af ritgerð.........viðaukar komnir inn í lokaskjalið.....búið að ensku leiðrétta kafla 1,2,3 og 4. Nú er bara að bíða eftir kafla 5 og 6 og abstract frá þeirri nöktu. En mikið verður nú ekki gaman að gera efnisyfirlit......jæks........var alveg búin að gleyma hvað það er mikil vinna að setja upp ritgerð, endalaust að lagfæra og jafna bil og færa .....orðið alveg feiki mikið og stórt skjal...og ég er orðin hrædd um tölvuna mína, að greyjið ráði ekki alveg við þetta. Og svo er alveg endalaust hvað hægt er að finna af punktum og kommum sem eru ekki á réttum stað...... þrátt fyrir að vera í 5tu umferð í heimildaskránni!
Guðjón átti snilldarleik hér um daginn þegar einhver semi vírus var búin að taka sér bólfestu í tölvunni og lét illum látum.........auðvitað reddaði hann málunum einn, tveir og bingó!
Ég er búin að kaupa mér farmiða til Mallorca til að halda upp á afmæli Mutti þann 26. sept.....mikið gaman og mikið gott..12 dagar í að ég hitti allt liðið mitt ;) í sandölum og ermalausum bol. Vona bara að fyrirtækið fari ekki á hausinn þangað til........líka spurning hvort ég á að þora að versla við Eimskip til að koma dótinum mínu heim....hmmmm....já peningar peningar....eru ekki allt en þó nauðsynlegir
Friday, 12 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
jei... ótrúlegt að þú sért bara farin að plana heimferð;) og massa öfund yfir sólinni og sælunni sem þú átt í vændum...
Verð með þér í huga á mæjó pæjó
Post a Comment