Alveg hreint frábært............Eimskip er hætt að flytja búslóðir til Íslands og bankinn hættur að svara e-mailum frá mér.
Fórum til Uxbridge í dag, bæði skólann og bæinn til að kveðja...............komum við á Metropolitan og fengum okkur í gogginn. Metropolitan er alveg ekta ´sveitt´ bresk krá með gömlum köllum, ódýrum vafasömum mat, pissulykt í hornum og klístruðum borðum. Já já gaman í uxabryggjunni, ágætis bær.
Sölumennskan gengur framar öllum vonum og það lítur úr fyrir að ég komi út í + ef við teljum ekki 200 þúsund krónar tap vegna þjófnaðar með! Ryksuguna er ég búin að selja, hillur og skálar........og það er bara assgoti gaman að fá jafnmikið fyrir vöruna og ég keypti hana á!!! loksins góðar fréttir......hehehehe .....hinsvegar á ekki eftir að vera vistlegt að búa hérna í Shenstone þegar mest allt verður farið.
Monday, 6 October 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
hmmmm Sonja mín, við erum farin á hausinn. Já ekki ég og Gummi, heldur bankinn þinn og Eimskip. Þykir samt gott að heyra að þú ert enn í bullandi bisness í Englandi, það er meira en margir geta sagt í dag. Verður gott að fá klóka konu heim á klakann
Fín mynd af ykkur systkinunum :) Mútta getur nú verið stolt af þessum hóp. Hver er Rósberg? Eitthvað sem þú átt eftir að segja okkur?
Jaaaa....ég er hérna enn þá í bankanum þínum...getur kannski prufað að senda mér póst ;-) Og bróðir minn er að vinna hjá Eimskip.....þetta er samt ekki okkur að kenna!
Post a Comment