Thursday, 9 October 2008

Heimkoma

Þá er það staðfest að kellingin er á leið heim. Lendi í Keflavík á mánudagskvöldið 13 október ;) og fer norður næsta morgun svo ég mun ekki stoppa lengi í borginni að þessu sinni. Ég verð að viðurkenna að ég hlakka hreint gífulega til þrátt fyrir allt að koma heim.....taugarnar hafa verið þandar til hins ítrasta síðustu vikuna og ég hef heyrt að best sé að hætta þegar leikur hæst stendur (eða eitthvað álíka) og þar sem ég er farin að gelta á fólk í kringum mig og þoli illa kjánalæti .......og fleira ...........þá er best að drífa sig heim og fara að gera eitthvað af viti og reyna að koma mér í vinnu. gjadpogja´gopáa...................................heim heim heim vvvíííí

3 comments:

Anonymous said...

mikið verður gott að fá þig heim, leiðinlegt að ná ekki að hitta þig áður en þú ferð norður, strákarnir eru orðnir svo spenntir að hitta þig :) Góða ferð heim og gangi þér vel á lokasprettinum.
Klapparhlíðargengið

Sonja Stelly said...

Já það er súrt að ná ekki að hitta á gengið þitt en ég reikna fastlega með að skreppa suður áður en langt um líður og þá kem ég í kaffi ;)

Anonymous said...

Sonja eitt af því sem er mælt með að gera áður en fólk yfirgefur London er að virða borgina fyrir sér á Palament Hill í Hamstead Heath. En í framhaldi af samtali okkar í dag mæli ég með að þú sért ekkert of mikið að segja frá því að þú sért af íslenskum ættum núna í Englandi.