Halelúja ég er farin að sjá ljósið aftur ;) eftir nokkra erfiða og dimma daga yfir tölfræðilegum vangaveltum um gild eða ógild fylgni próf og samruna breyta þá er 4 kafli að fara líta dagsins ljós. Ég ætla reyndar ekki að fagna fyrr en frú Hvernig á að líta vel út nakin samþykkir hann.
Fór meira að segja út að skokka í morgun og það er eitthvað sem hefur ekki gerst frá því í enda júní.................enda fann ég það alveg ................hehhehehe.......... varð bara alveg hvæsandi móð þrátt fyrir að fara bara brot af því sem ég fór áður. Jæja nú er ég sko farin að sakna ykkar.........þetta er búið að vera frábært ár sem ég mun aldrei sjá eftir en nú er líka komið gott.........lokaspretturinn og svo kem ég á klakann.
Ekkert að frétta af músum......gott mál.
Lifið heil!
Friday, 29 August 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Lifi ljósið.. og lýsi þér:)... Þú stendur þig svo vel Sonja. Ég dustaði einmitt rykið af hlaupaskónum í gær eftir langt hlé og var svona assgoddi léleg. Nú væri nú gott að hafa eina Sonju með sér í hlaupin og sparka dálítið í rassinn á mér. Gangi þér vel með ungfrú nektarínu. Við Góa sendum stórt bros:)
Frábært að heyra Sonja. Hlakka til að )sjá þig í haust!
Viva Der deutsche Stahl!
Gaui
Já mikið verður gott að fá þig heim;) hvatningarkveðjur frá Stínu og stelpunum
Hæ vinkona;) fékk smá innblástur og bloggaði pínulítið... kíkkaðuáða;) http://stinagumm.blog.is
Stínan
Post a Comment