Er á þeim stað núna þar sem ég sakna margra hluta frá Íslandi og sérstaklega Akureyri, hlakka til að mæta aftur í bæinn. Er líka að byrja að sakna hluta frá Englandi þótt ég sé hérna enn og verði í nokkurn tíma í viðbót. Já þetta er skrítið.
Í gær voru þrumur og eldingar í næstum allan dag og ausandi rigning inn á milli. Vinur minn hringdi í mig þar sem ramadan er að fara byrja, til að athuga hvort það væri ekki allt í góðu á milli okkar. Áður en hann heldur inn í ramadan vill hann ekki eiga í útistöðum við neinn og þar sem okkur greindi töluvert á síðast þegar við hittumst, um ástandið á milli Ísraels og Palestínu, þá vildi hann vera viss um að við værum ´í góðu´. Annars er tíðinda lítið hér í Ealing. Á 6500 orð eftir af lokaverkefninu og ég sveiflast á milli þess að finnast það nokkuð gott og ekki gott........................þegar ég er nýbúin að skoða verkefni sem bretar hafa skifað og les svo það sem ég hef skrifað þá er það eins og bera saman skrif Þráins Bertelssonar og 6 ára barns...........en jæja einhversstaðar verð ég að setja mörkin og þar sem ég er búin að vera að gera mitt besta þá nær það ekki lengra.
Hugsið ykkur..........það er kominn september
Monday, 1 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Já...Þráinn getur verið ágætur en 6 ára börn hafa yfirleitt eitthvað merkilegt að segja ;-)
6500 ... hva! það er ekkert! hehe.... þú rúllar þessu upp... knús frá Stínunni
Post a Comment