Átti í mínum daglega barningi við að sofna í gærkveldi........þrátt fyrir um klst göngtúr um daginn. Næ að sofna en hrekk upp nokkrurri stundu síðar við einhver furðuleg hljóð. Þar sem ég svaf í fyrsta sinn með opna hurð taldi ég að þetta væru bara einhver hljóð sem ég væri ekki vön. Þegar ég fór hins vegar að heyra skrjáf í pappír og plasti fóru grunsemdir mínar að styrkjast um að ég væri ekki ein í kotinu eins og ég hélt. Ég fór því að fætur og kveikti ljósið....sá ekkert óeðlilegt......fór fram en lagðist svo aftur til hvílu. Þegar hljóðið fór hinsvegar að nálgast höfuðlagið á rúminu mínu var mér ekki farið að lítast á blikuna og nú var ekki hægt að kenna vindinum um. Kveikti því ljósið og sat á rúminu í góða stund og beið..............haldið þið ekki að lítið músaskott komi ekki stökkvandi undan rúminu mínu beina leið inn í skáp. Ég var nú bara pínu feigin að sjá stærðina á henni..........hefði ekki alveg verið viss hvað hefði gerst ef feit rotta ef birst................en allavegna trítlaði þessi litla um herbergið og reyndi að klóra sér leið út um hurðina sem ég hafði lokað eftir síðust ferð fram. Til að gera langa sögu stutta þá náði ég að góma boðflennuna í þessa fínu IKEA plast skál, eftir að hafa sett herbergið á annan endann...........................reyndi nefninlega fyrst að ná henni með því að taka allt úr skápun, svo með því að setja allt inn í skápinn!.....................og í staðinn fyrir að henda henni fram af svölunum, skoppaði ég með mýslu niður og veitti henni frelsi. Eftir á að hyggja finnst mér skrítið, en er þó fegin, að enginn nágranni kom til að tékka what the hell is going on here því atgangurinn var nokkur því mýsla lítil og snör. Mig langar samt að benda á að ég bý á 4 hæð!!!!!!!
Vona núna bara að báran sé stök.
Tróð sem mestu í skápinn og ´einangraði´hann

Allt komið á hvolf.

Náð´enni......sorry en ég dirfðist ekki til að ná betri mynd af músinni, en það má greina útlínur....hehehehhehe
Björgunar aðgerðum lokið.
5 comments:
ohhhhh pfui, habe aber trotzdem sehr gelacht ;-)
Mín viðbrögð við svona aðstæðum væru að hlaupa út...þ.e. eftir að hafa skvett bensíni um allt og kveikt í kofanum í von um að kviknaði í músinni. Gott að þín viðbrögð eru meira í samræmi við aðstæður :)
hehehehe hilarious stuff;) já stuart litli var heppin að rekast inn til þín Sonja en ekki til mín... já eða Bebbu;) kv Stínan
HaeHae.
En toltir ekki mysla litla bara upp aftur i kvold!
Skemmtu ther vel. Eg hef komist ad thvi eftir ad bua i storborg ad eina leidin til ad losna vid mys er ad fylla allar holur i veggjum thar sem thaer geta komist inn og tha faerdu loksins frid, annars koma thaer alltaf aftur og aftur:)
Hefði frekað viljað eltast við mýslu heldur en að taka bita af geitungnum sem fylgdi rúsínunum hjá mér um daginn!
Post a Comment