Dreymdi um daginn að ég var að að berjast við ísbjörn.............finnst það ekkert skrítið miðað við alla þá umfjöllun sem hefur verið í fjölmiðlum á Íslandi..........allt saman hið ömurlegasta mál. Dreymdi líka að ég hefði eignast barn og lenti í miklum valkvíða þar sem afar spennandi fótboltaleikur var í gangi á sama tíma og um stund leit út fyrir að ég mundi velja fótboltann fram yfir barnið..........en svo tók drauma-móðureðlið yfirhöndina og ég sneri til króans! Talandi um fótbolta........jjjíííhhaaa Þýskaland er komið í 4 liða undanúrslit....í annars afar leiðinlegum 8 liða úrslitum...svo á miðvikudaginn er það á móti Tyrklandi..........allt getur gerst þegar spilað er við loka-mínútu-liðið en rosalega vona ég að Þýskaland flengi þá!
Átti góða daga með mutti og Stellu hérna í London. Slöppuðum vel af og nutum veðursins. Stella gerði sér lítið fyrir og skellti sér tvisvar sinnum út að jogga með mér. Svo héldum afar 'þjóðlega' upp á 17. júní........byrjuðum daginn auðvitað á að flagga Íslenska fánanum með því að stinga honum í blómapott á svölunum..............sungum hæ hó jibbí jei og svo borðuðum við nepalskan mat í Walpole park og lögðumst flatar á teppi. Tókum einn dag niður í bæ og svei mér þá hvað ég er mikil sveitastelpa....höndla bara ekki stórborgir með ærandi umferðarhávaða og áreiti úr hverri átt...algjör kettlingur sem þarf grænt gras, tré og fuglasöng.........híhíhí. Annars verð ég að segja að hver sá sem segir að London sé leiðinleg og ljót borg.......hefur bara ekki séð mikið af London.......ég er að segja ykkur að í mínum leiðöngrum um borgina þá hef ég rekist á ótrúlega fallega hluti og finnst ekki eins og ég sé stödd í borg! auðvitað eru ferðamannastaðirnir allir eins en þar fyrir utan er ýmislegt að sjá ef nennan og tíminn er til staðar.
Af verkefnavinnu er allt sæmó að frétta, spurningalistarnir að verða klárir en assgoti erfitt reynist að ná í almenning! Hvar er almenningur á Íslandi?
Svo eru ferðlög á næsta leiti. Leggjum í´ann til S-Þýskalands 1. júlí og verðum þar í 5 daga, skellum okkur svo í gengum Lux til Belgíu í 2 daga og endum svo hjá Kristínu, Birni og Góu í Hollandi og höldum svo heim til Ealing 10 júlí. Svo þarf ég nú að fara panta mér flugmiða til Íslands en ég reikna með að vera þar á bilinu 20. júlí til kannski 15.ágúst. Er nú þegar búin að bóka mig í barnapössun í viku og 40 ára afmæli! svo þarf ég náttúrulega að skreppa í borgina til að safna gögnum fyrir verkefnið og svo er nú alveg komin tími á klippingu...svei mér þá.
Jæja ...vona að allir hafi það gott þrátt fyrir uppsagnir og gjaldþrot.........
Cheers
Monday, 23 June 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hae hae.
Eg panta "hitting" a milli 20. og 30. juli:)
Verdum a akureyri allavega til svona 28. juli.
knus
nicole
Deutschland Deutschland über alles! Eins gott að þeir rústi Tyrkjum á morgun.
Að sjálfsögðu verður það ég sem vinn veðmálabjórkassann í vinnunni. Það gerist þegar okkar menn vinna EM!
Góða skemmtun á ferð þinni um miðevrópu:-* Mbk Sísý
Já nú erum við að tala saman Sísý........Deutschland vor....noch ein tor!
Og auðvitað Nicole, hittingur bókaður ;)
Post a Comment