Sunday, 8 June 2008

grillaðu í sumar

Þá er brjálaði íslendingurinn en eina ferðina búinn að láta baka sig í sólinni í dag undir vökulum augum sem hafa áhyggur af mér. Ég auðvitað reyni að sannfæra fólk um að þetta sé nú allt í lagi, ég noti sólarvörn númer 25 og snúi mér reglulega!!!!!.....eins og kjöt á teini. Það nær nú ekki alveg að sannfæra þau því ég heyri annað slagið þegar þau smella myndum af bleika fyrirbærinu á svölunum, með vatnsbrúsa í annarri og undirstrikunarpenna í hinni!
Verð nú að viðurkenna að æfingaráætlunin mín er nú ekki alveg að standast.....virðist einhvernvegin gleyma mér og fara alltaf hægt en lengra í staðinn fyrir fartleik æfingar, eða hvað þetta nú allt heitir, með t.d. stuttum en hröðum lotum. Svo er ég nú búin að komast að því að það er ýmislegt sem getur hrjáð skokkara....óþarfi að fara í gengum það allt hér en blöðrur og nuddsár hafa verið að hrjá mig auk þess sem vinstri fóturinn á mér dofnar upp í kringum 43. mínútuna. Er auðvitað búin að fjárfesta í ógrynni af plástrum....... og safna siggi eins og serviettum forðum daga .........og það tekur mig nokkrar mínútur fyrir hvert skokk að smyrja fyrir nuddsárum......sem minnir mig á gríðarlegt magn af júgursmyrsli sem notað var á æfingum með Óðni....líka forðum daga. Búin að reyna að reima skóna eins laust og ég þori.......og svei mér þá ég held að það virki aðeins...dööööööö.

Mutti og Stella að koma eftir 6 daga....vvvvíííí....hlakka bara mikið til að fá þær og við getum sungið hæ hó jibbí jei á þeim 17 -da! Svo fer nú líka að styttast í eina af þeim 5 barnsfæðingum sem eru framundan.......auðvitað væri nú gaman ef þau mundu öll fæðast í júlí/ágúst.....eða eftir 15 okt....en ég get nú víst ekki beðið um það.

Í kvöld er svo þýskaland að fara að spila.......Deutschland vor, noch ein tor! og ég er tilbúin í slaginn.....
Nei, ég er ekki búin að fara í stækkun....bolurinn er bara heldur þröngur!



Skruppum um daginn í bæinn...


Og svo var borðað úti á svölunum

2 comments:

Stella said...

Skora á þig að gerast pistlahöfundur í dagblaði:)

Milla said...

kalla þig nú duglega mín kæra....ekki gefstu upp frekar en fyrri daginn. Þú ert náttlega hetja!!!! Bíddu hvaða 5 fæðingar eru framundan? Teluru Bebbu sem 2 fæðingar, eller?