Ekki það að ég hafi í hyggju að breyta þessu bloggi um veru mína hér í London í eitthvað íþróttablogg..........en ég verð nú að minnast á frábæran leik Íslenska landliðsins í handbolta í dag sem tryggði sér sæti á ólympíuleikinum í Peking í haust........svakalega gaman að fylgjast með leiknum og ég fagnaði ákaft hverju marki ;)
Annars er nú ekkert að frétta........nema að við borðuðum MandS kjúlla í kvöldmatinn úti á svölunum........annars á ég erfitt með að einbeita mér að náminu þessa dagana og virðist ekki geta notið þess að gera ekki neitt á daginn..booooooooooring.....hmmmmm....verð að hrista þetta af mér því planið er að skrifað megnið af lokaverkefninu áður en mutti og Stella koma um miðjan júní.........svo ég geti fundið mér vinnu hér í Ealing í ágúst og september...€$!
Jæja best að fara gera ekki neitt..........túrilú
Sunday, 1 June 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
hæ ætlarðu að vinna í júlí og ágúst? Hvernig vinnu ertu að spá í? Það er til nokkuð sem heitir að vera locum OT þ.e. lausráðinn iðjuþjálfi þannig að þú gætir unnið til skamms tíma á vinnustöðum allt frá viku og upp úr. Kannski viltu þú líka gera eitthvað allt annað og þetta gæti líka verið of mikið vesen því þú myndir líklegast þurfa Breskt vottorð um að prófið þitt sé fullgilt í UK. Bara hugmynd gæti verið fín reynsla. xx Kristín
Það er líka örugglega svona Career Center í skólanum þínum sem þú getur skráð þig í....eins og ég var að gera!!!Það er svona nokkurs konar vinnumiðlun.
Þá færð þú upplýsingar um fyrirtæki sem eru að leita starfsfólki, bæði í hlutastörf, ákveðin verkefni og svo náttúrulega í framtíðarstörf. Þau get líka hjálpað þér með CV-ið þitt og sonna, rosa sniðugt :)
Væri alveg til í að fara heyra í þér!!!
Kveðja af klakanum!
Valdís Brá.
Post a Comment