Mikið er nú gaman að vera námsmaður í Bretlandi þegar pundið stendur í 165 krónum! Til samanburðar þá stóð pundið í kringum 135 krónur í júlí í fyrra................verst að Primark notar börn til að framleiða ódýrar vörur fyrir sig.
Þvottavélin er búin að vera biluð í 10 daga .......og ekki næst í eigandann sem var búinn að lofa okkur viðgerðamanni í byrjun þessarar viku.........held ég eigi enn 3 hreinar naríur (sorry Valva)svo ég þoli víst enn við.
Hef ekki geta farið út að skokka í 4 daga sökum slæmrar beinhimnubólgu.....svo nú fer ég bara út að labba ..hef aldrei fengið beinhimnubólgu á þessum stað á fætinum áður... arg og úlfaldi.
Og svo að lokum til að fá það á hreint þá er múslimi ekki það sama og múslimi rétt eins og kaþólikki er ekki það sama og kaþólikki og svo framvegis. Einum vini mínum hérna í London er mikið í mun að árétta að samkvæmt kóraninum eru strangar reglur til um að t.d. virða allar manneskjur því öll erum við nú komin frá Adami og Evu og þeir sem eru 'sannir´múslimar eins og ég hef kosið að kalla þá eru upp til hópa friðelskandi verur sem leitast við að gera heiminn að betri stað og koma fram við alla af virðingu. Hann hefur bent mér á að það eru einstaklingar sem túlka kóraninn á annan hátt og framkvæma jafnvel voðaverk í nafni trúarinnar og segjast vera múslimar EN samkvæmt hans túlkun þá getur hann ekki samþykkt allar þær gjörðir sem framkvæmdar eru í nafni trúarinnar (hann getur að sjálfsögðu ekki sagt að einhver sé slæmur eða góður múslimi þar sem hann er ekki guð og getur því ekki dæmt um það) þar sem Muhammed spámaður mælir ekki með slíku. Þetta er nú að mínu mati sambærilegt við það sem er að gerast annarsstaðar í heiminum þar sem margir telja sig vera trúaða og segjast vera það en að sama skapi hagar sér ekki í samræmi við boðskapinn. Vona virkilega að sé ekki að traðka á neinum tám hér og að við getum öll lifað saman í friði og spekt.
Wednesday, 25 June 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Mikið rosalega er ég sátt við þig núna Sonja, vel uppalin héðan úr borginni. Allt í góðu með naríurnar en ég hefði aldrei trúað því að þú ættir hreinar brækur...þó svo að þvottavélin væri í lagi ;-)
jiiiii þú endar sem heimspekingur með áherslu á trúarbragðafræði....veit ekki hvort við eigum að hafa áhyggjur eða samgleðjast yfir því að einhver á Íslandi skuli vera svo skynsamur að pæla og skoða í stað þess að alltaf bara fordæma
Post a Comment