Friday, 15 August 2008

Guten tag, Omi



















































Þá er kellan mætt aftur til Ealing með 87 spurningalista í farteskinu og eitt risa lambalæri. Þetta á eftir að vera erfið törn núna fram að sonna 25. september en gerlegt að ég held, ef ekkert kemur uppá. Fínt að hafa gulrót til að keyra aðeins áfram með þetta............VÁ, þvílíkt vanþækklæti gagnvart menntun að finnast ekki nógu hvetjandi að klára gráðuna bara fyrir gráðuna..............ja hérna hér, ég er greinilega svona einföld og hef ekki þann metnað að vilja bara klára heldur þarf ég að hafa fyrirliggjandi að geta hitt á fjölskylduna á sólarströnd til að fagna....................nei andsk......auðvitað væri ég líka að spýta í lófana þótt ég væri ekki að fara á sólarströnd! Auðvitað!
Átti alveg hreint dásamlegan tíma á Íslandi og er farin að hlakka mikið til að flytja til Akureyrar......híhíhí þetta hljómar bara furðulega ;)
Takk allir kærlega fyrir að hjápa mér ......................vá hvað ég er heppin að eiga svona góða að .....endalaust heppin. Náði að gera fullt fullt á Íslandi og hitta næstum því alla og eiga góða stund með þeim. Auðvitað var ég annaðslagið þjökuð af svakalegum kvíðaköstum vegna einhverra súper framkvæmda og dónalegu fólki sem vildi ekki svara spurningarlistanum mínum.................en nú eru listanir komin í hús og þá get ég farið að missa svefn yfir SPSS áhyggjur og ekki hefur fjárhagurinn batnað þar sem ég vann ekki í lottóinu síðast...................skambans ég gleymdi að kaupa miða fyrir morgundaginn! erum við ekki að tala um 65 millur................JÁ TAKK ;)
Stundum elska ég íslendinga og þeirra hugsunarhátt........þessi gullnu orð: ÞETTA REDDAST..........og stundum tekst mér að kæfa þjóðverjann í mér sem getur virkilega haft áhyggjur af öllu og tileinkað mér þennan þankagang. Jæja best að fara að skella í sig einum te bolla til viðbótar svo ég verði ekki þunglynd af öllu þessu þunglyndi.
Cheerió

2 comments:

Anonymous said...

Gott að heyra að þú hafir komist klakklaust "heim" til þín. Það var frábært að fá að hitta þig og mikið verður nú gott að fá þig heim á klakann gráðunni ríkari :) gangi þér vel á lokasprettinum, þú átt eftir að massa þetta. Bestu kveðjur frá hvalrekanum og fjölskyldu

Anonymous said...

Hæ pæ.
Velkomin tilbaka til London og gangi þér nú vel með verkefnið þitt :-) Æðisleg mynd af Mikeal og ömmu...ótrúlega skemmtileg :-) Söknum þín fullt of endilega stoppa sem mest í víkinni þegar þú ert á ferðinni....sófinn góði er alltaf laus fyrir þig ;-)
kv
Valva