Þá er lambalærið komið í ofninn.........kryddað hvítlauki, birki, blóðbergi og rósmarini. Fann ekki rabarbarasultu :( en það verða grænarbaunir, rauðkál (að ég held....veit ekki alveg hvað ég kaypti) og kartöflur með. Veit ekki hvort ég nenni að brúna þær. Í eftirrétt verður KEA vanilluskyr blandað rjóma með jarðarberjum.........já held að það verði bara gott.
Á morgun verður stefnan tekin á Wembley þar sem England og Tékkland mætast vonandi í afar spennandi leik. Nokkrar kjánalegar pælingar hafa verið í gangi varðandi leikinn t.d. hvort það er vert að hrópa ´Áfram Tékkland´ (vitaskuld á ensku) í miðri breskri krá, láta lumbra vel á sér og fá vottorð til að skila ritgerðinni seinna. Nei nei kannski ég máli frekar bara íslenska fánann á rassinn á mér og reyni að komast í sjónvarpið! Nei nei það gæti kostað ár í fangelsi. Hmmmmm.....

Svaka sæt fjölskylda!
2 comments:
Hae Hae.
Af hverju erud thid med bleikt og blatt har? Eg er greinilega alveg ut ur thvi!
Nicole
Veðja frekar á íslenska fánann á rassinn!
Post a Comment