Eftir að hafa vorkennt sjálfri mér í dágóðan tíma ákvað ég að skreppa til uxabryggju á fimmtudaginn síðasta eftir lokaverkefnis tutorials í leit minni að tilfinningunni ´að tilheyra´ einhverjum stað hér í London. Þegar ég labbaði fram hjá minni gömlu myglu íbúð þá byrjaði ég ósjálfrátt að brosa..........finnst alveg ótrúlegt að í júlí á síðasta ári hafi ég á þessum stað hafið þetta ævintýri á sólríkum og heitum sumardegi hér í London og ég man enn hvað ég var spennt en ótrúlega jákvæð, örugg og algjörlega tilbúin........Eftir að hafa rifjað þessar góðu minningarnar upp fór ég á alla mína uppáhaldsstaði í uxanum og hélt heim á leið sæl og glöð í bragði með súkkulaði í maganum fullviss um að ég þarf svosem ekki að tilheyra neinum stað hér í London.........tilfinningin er inni í mér og stundum þarf ég bara að leita að henni.....;) En að öðru ögn léttara og minna drama......
Á föstudagskvöldið var mér boðið í grillveislu á flöt einni skammt frá Brunel. Við vorum örugglega hátt í 16 manns sem nutum kvöldblíðunnar.....maturinn vara afbragð í alla staði, læt nokkrar myndir fljóta með....
Allra þjóða kvikindi
Smeee...farið að halla
Og í gær fór ég ásamt Matviy og Roberto á Tate Modern sem var bara afskaplega skemmtilegt.....þótt ég skilji ekki alltaf nútíma list .....en það voru líka nokkur klassískari verk inn á milli eins og eftir Picasso og vatnalilju myndin eftir Monet. Ég tók nú sérstaklega eftir því hvað það er til mikið af fallegum karlmönnum........ en afhverju eru svona margir af þeim samkynhneigðir!
Svo horfði ég auðvitað á eurovision keppnina í gærkveldi.......þótt ég hafi haft ágætlega gaman að hlusta á lögin þá fór ég í vont skap þegar að stigagjöfinni kom........heheheheh ekki það að hún hafi komið mér á óvart á neinn hátt..........en furðulegt nokk þá vaknaði ég í morgun með sænska lagið á heilanum!
Lifið í lukku en ekki í krukku
1 comment:
Jebb..þetta djö sænska lag situr í mér!!
Post a Comment