Lítið að frétta frá London landi....hef engan séð labbandi um með hníf á lofti! Sá hingsvegar áhugaverðan sjónvarpsþátt í gærkveldi þar sem reynt var að finna út hvað mundi gerast á jörðinni ef mennirnir mundu hverfa dag einn. Það sem mér fannst merkilegast var að eftir aðeins 36 klukkustundur fer náttúran að taka völdin eins og t.d. London sem mun fara að hluta til á kaf þar sem neðanjarðarkerfið mun fyllast af vatni. Á 100 árum verða líklegast lítil ummerki eftir sem minna á mannfólkið, þar sem stór mannvirki eins og t.d. Hudson brúin í U.S og Eiffel turninn í París fara að hrynja. Það er alveg magnað hvað við í raun og veru stjórnum umhverfi okkar mikið svo ímyndið ykkur ef við hverfum..........stíflur bresta, brýr ryðga, skógar stækka, bækur og ljósmyndir morkna og eyðast, rottur deyja út, .......og kettir fá vængi (t.d. stökkbreytast við að veiða fugla í öllum háhýsunum)..............
Mér finnst bara pínu spúggí að hugsa til þess hversu lítin tíma þarf til að útmá 'allar´vísbendingar um mannlíf á jörðinni........pínu sorglegt að finna hvað við erum smá í sögulega samhengi jarðarinnar

En mikið er hún nú falleg ........
Annars er ég þessa dagana að hanna spurninglistann fyrir lokaverkefnið, finna úrtakshóp og vinna í tilkynningu til Persónuverndar og siðanefndar Brunel. Leiðbeinandinn minn byrjaði á því að minna mig á að einungis er um nema verkefni að ræða svo aðalmarkmiðið er að sýna fram á að ég kunni rannsóknaraðferðina vel og að vinnubrögðin séu fagleg. Mikið kemur sér nú vel að hafa gert BSc verkefni dauðans á sínum tíma...........helv.....flott verkefni hjá okkur Millusi og Döggu. Svo er verið að vinna í að plana litlu evrópureisuna sem er nú að breytast töluvert. Búið að fórna Frakklandi og einungis verður um dagferð að ræða til Belgíu........en ferðafélagarnir hafa meiri áhuga á Þýskalandi svo nú er verið að kortleggja s-þýskaland eins og það leggur sig, alla leið til Alpanna...........hehehehehe og ég sem ætlaði bara til Köln! En ég berst með kjafti og klóm og mun ekki gefa upp Holland......neiiiiiiii....ég skal fara til Hollands.
1 comment:
Já, það má með sanni segja að við erum með helv... gott nám á bak við okkur. Blóð, sviti og tár borguðu sig þegar öllu er á botninn hvolft!!
Gangi þér vel, dúllan mín með framhaldið :)
Kveðja, VBÞ
Post a Comment