Gleði gleði gleði........mutti og Stella koma og heimsækja mig í júní...vvvvvvvvvíííííí.......er strax farin að hlakka til......það verður nú allt annað að taka á móti þeim núna, komin í annan kofa og sonna. Er farin að leggja á ráðin um dagferðir, lautarferðir, kráarferðir og sýningar.......auk mikillar afslöppunar, endalausar samræður og auðvitað MAT! Búhúhú það er svo leiðinlegt að vera alltaf vöktuð og skilja ekki kínversku....og vera alltaf sú skrítna (heheheheh)...og alltaf sú eina........sniff..sniff....því verður alveg frábært að fá M og S í heimsókn og getað dekrað við þær fram og tilbaka á þýsk-íslenskan máta.
EN að allt öðru...........ég er nú meiri ljósálfurinn............samkvæmt áreiðanlegum heimildarmönnum frá asíu telst það ofureðlilegt ef nemendur skrifi ekki lokaverkefnin sín í háskólum heldur fylli út t.d. spurningarlistana út sjálfir eða jafnvel sleppi þeim algjörlega og bara slumpa á einhverjar tölur............NÚ skil ég af hverju ég er búin að vera að læra á fullu í vetur á meðan aðrir nemendur skólans hafa verið sali rólegir.............það er sem sagt ekki það að ég sé treg, heldur vegna þess að ég fór í skólann til að læra og hef verið að læra og unnið þau verkefni sem fyrir mig eru lögð en er ekki einungis að þessu til að fá prófgráðu.
Mikið rosalega er eitthvað að atvinnumarkaðinum að krefjast prófgráðu sem jafnvel ekkert eða lítið er á bak við og háskólum að leggja fyrir verkefni sem meirihlutinn stelur eða lygur til um. Ég er bara í sjokki yfir þessu. Gerði mér grein fyrir að það væru einhverju nemendur að svindla EN að þeir væru svona margir OMG! ég er svoooooooooo blaut á bak við eyrun.
Jæja í kvöld er það fótboltinn....áfram Chelsea! og annað kvöld ætla ég að vera algjör íslendinga-júróvisíon-nölli, með íslenska fánann í annarri og öl í hinni..........áfram Ísland!
Wednesday, 21 May 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
ja ja Kindchen, die Welt ist hart;-)
Post a Comment