að ég sé búin að vera hérna í slondon í nákvæmlega 8 mánuði í dag og ég er komin með brúnar tennur af allri te drykkjunni. Þótt ég mér líki afar vel við breta á margan hátt þá líkar mér ekki við tannheilsuna þeirra og nú óttast ég hvernig ástandið verður eftir 5 mánuði til viðbótar hér í landi te drykkjunnar, fótboltans, tv kokkanna, Bonds og Harry Potters, luv og hon, top gear, bítlanna og coldplay, little Britain þáttanna, svarta húmorsins og venjulega fólksins, rigningarinnar, konungsveldisins, og scones og pie. Hmmmmmm......skrítið.......eftir að hafa skrifað allt þetta þá átta ég mig á því að einhvernvegin finnst mér bretar vera táknmynd venjulega fólksins, sem er bara eins og það er, ekkert meira og ekkert minna. Engin dramatík eða óþarfa æsingur. Hvunndagshetjur.........já mér finnast bretar vera hvunndagshetjur.
Ég er ekki með brúnar tennur......ég er með hvunndagshetjutennur og núna er ég er bara stolt af þeim! Þegar ég verð orðin gömul kona og einhver krói spyr mig afhverju ég sé með svona brúnar tennur þá get ég sagt......jaaaaááá ég skal nú segja þér eina af þeim mörgu sögum sem ég á af ævintýrunum sem ég lenti í þegar ég bjó á Englandi..........
Tuesday, 29 April 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hæ pæ. Bara að skilja eftir kveðju :-) Getur líka alltaf bara látið hvítta tennurnar, taka einn Ross á þetta ;-)
kv
Valva
Post a Comment