lítið að frétta frá London þessa dagana. Eftir magnaðan laugardag þá er búið að rigna á hverjum degir eitthvað, og spáin hjómar áfram á þeim nótunum. Sem betur fer þá bjó ég eitt sinn í Hveragerði svo ég þoli töluvert af rigningu. Búið að þruma nokkrum sinnum síðustu dagana.......mér finnst það nú alltaf jafn merkilegt.
Í þessum rituðu orðum er eitt stykki krummi að reyna að komast inn um gluggan hjá mér. Býr í algjöru krumma eða réttara sagt kráku hverfi. Gggggrrraaaa ggggraaaaaaaaaa er því ekki svo óalgengt hljóð á hvaða tíma sólahringsins sem er. Hef þær grunaðar um að búa einhversstaðar í húsinu.......eða utan á húsinu! Þarf að rannsaka þetta eitthvað betur.
Er að byrja að undirbúa mig fyrir prófið í research methods.......úff úfff úfff þetta er nú ekki það einfaldasta eða skemmtilegasta á íslensku, hvað þá á engilsax......en eins og ein vitur kona sem ég þekki : Augen schließen und durch. Hef nægan tíma til að troða einhverju af þessum fróðleik í búið og svo hef ég nú líka bókina góðu frá Valdísi.
jæja áfram með smérið
Tuesday, 29 April 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hljómar eins og þú sért á leið í Aðferðarfræði rannsókna... sem er einmitt þrælskemmtilegt fag sem ég er einnig að fara í próf í á miðvikudaginn. Aftur á móti er kennarinn minn söngelskur og virtur af sínum nemendum *hóst* og má hlusta á merkar tónsmíð eftir hann hér:
http://staff.unak.is/not/andy/Pop/LayLadyLay.wma
Vona að þessir ljúfu tónar hjálpi við prófalesturinn. Veiti þér andargift og slökun nú þegar endirinn á þessu ævintýri nálgast óðfluga og önnur ný og spennandi bíða þín!
Lage Damelage. Lage über meiner grossen Brust!
Kær kveðja,
Guðjón
Post a Comment