Monday, 4 February 2008

York











Well mín kæru þá er kellan komin aftur til London eftir langa helgi i York. Mikið er þetta nú fallegt svæði og mæli ég því hiklaust með ferð þangað. Við gistum í hlöðu, Lane End, sem er nýlega búið að gera upp á einstaklega fallegan og smekklegan hátt, staðsett um 20 km frá miðbæ York. Vorum með bílaleigubíl svo það var lítið mál að komast á milli og ekkert svo erfitt að keyra vinstra megin (með gps og hliðarökumann) þótt ég hafi nú örugglega svínað einu til tvisvar sinnum á mann og annan á hringtogi. York er voða kyrrlátur og snyrtilegur bær með fullt af súkkulaði og nammibúðum auk þess að bjóða upp á sögufrægar byggingar og umhverfi sem ég kolféll fyrir. Herra og Frú Matvælaerftirlit voru með í för og nokkuð ljóst að ég þarf að ræða aðeins við þau og krefjast almenninlegra skýringa og ekki bara kjánalegra á þessu hátterni.........ekkert sniðugt. Herbergisfélaginn minn var fínn að því undanskyldu að hrjóta svona rosalega og ég þurfti að sofa í stofunni og sem betur fer var sófinn nokkuð þægilegur og ég gat næstum því rétt úr mér í honum. Tók að sjálfsögðu með mér svitagallann og skokkaði í léttri snjó muggu einn morguninn, fann slasaða kanínu og athugið að ég fór ekki að grenja......ég fékk ekki einu sinnni kökk í hálsinn heldur bara færði hana af veginum og hélt áfram minni för.....pældi meira að segja í því hvort það hefði kannski verið betra að láta hana bara vera því næsti bíll mundi örugglega linna allar þjáningar....ætli ég sé núna orðin fullorðin?
Sæl eftir ágætis ferðalag sem endaði í frábæru outlet-ti skammta frá York fékk þá þær dásamlegu fréttir að Góa Björnsdóttir væri fædd. Hlakka til að hitta hana á næstunni. Svo er bara að læra læra læra þar til ég kem til Frónar í næstu viku.
Lifið heil

5 comments:

Anonymous said...

Das hört sich ja ganz toll, von dem Kaninchen mal abgesehen.und so schön grün da in York.Wollen wir uns ein Cottage kaufen und hinziehen? die Aktien stehen doch sooooooooo gut.Schon was von dem Geldklauer gehört.Sauerei, dass man andere Mitstudenten beklaut.Traue also niemanden!!!Gibt es in London auch karneval?Am Aschermittwoch ist dann alles vorbei.Fange bald an zu lüften gruss m+A

Unknown said...

Það er ekki hægt að vita til þess að þú fullorðnist á undan mér Sonja ._.

Ég held ég hafi nú haft orð á því að ég ætlaði að gera það á undan þér. Annars langaði mig bara að þakka fyrir skemmtilegar færslur :) Þetta gerir ekkert nema kveikja í manni áhuga á að fara sjálfur og læra meira um þríhyrninga, hringi og önnur rúmfræðitákn iðjuþjálfavísinda. Er að læra núna í skólanum alveg það nýjasta, eða "cutting edge science" eins og það heitir en það er þessi speki "Ef þú æfir þig í einhverju þá verðuru betri". Ekki hafði mér dottið þetta í hug. Nú skil ég af hverju þetta er BS nám en ekki BA ^^

Annars allt gott að frétta, reyndu nú að fresta Evrópu túrnum um 1-2 mánuði plx kk!

<3 Gaui

Sonja Stelly said...

Hahahhaha.....thad sem sagt svona gaman i skolanum Gudjon! Komdu bara med mer i evroputur nr 2 i sumar til Hollands, Thyskalands, Belgiu og etv Frakklands.
Good luck

Anonymous said...

Hæ hæ Sonja mín
Það var gaman að heyra í þér um daginn og ég hlakka til að fá þig norður í sæluna. Öskudagurinn er nýliðin og því hmmm...hvernig á ég að orða þetta, NÓG til af nammi (þar sem dæturnar borða ekki súkkulaði) til að japla á yfir hæfilega væmnri stelpumynd....Hljómar vel. knúsar DB

Unknown said...

Búnað setja á fót ferðasjóð. Það verður stoppað í Rauða hverfinu er það ekki? Og fauna Hollands skoðuð einnig. Einnig er ég spenntur fyrir að sjá verksmiðjuna þar sem þýska stálið var hamrað til!

Annars.. hafðu það gott. Kveðja til Mura og Nedia!