Friday, 8 February 2008

Sól í heiði

Halló mín kæru..........afsakið þið sem sitjið föst í ófærð, stormi eða flóði ......eða öllu í bland, en hér í London er bara afbragðs veður...sólín skín og í gærkveldi var fínt peysuveður ;)
Á miðvikudagskvöldið fagnaði ég kínversku áramótunum með nokkrum félögum flestum frá Taiwan. Ár rottunnar er nú hafið og ég enn og aftur orðin árinu eldri.....dóóó og ég sem er svo að heiti nýbúin að eiga afmæli. Borðuðum Hot Pot sem er í rauninni súpa sem er látin malla í marga klukkutíma og grænmeti, núðlur, kjöt og fiskur er sett í pottinn góða from time to time, látið malla í nokkrar mínutur, veitt og svo snætt.......nammi namm. Eftirrétturinn var hrísgrjóna kaka steikt upp úr eggjum og hveiti, hrísgrjónakex, engifer og mandarínu hlaup og grænt te. Að hætti innfæddra fékk ég áramótagjöf sem er alltaf peningur í rauðu umslagi gefin af þeim sem vinna til barna og aldraðra........hmmm... þar sem ég get ekki flokkast sem barn (eða hvað) þá hlýt ég að vera gamalmenni! Kínverskt gamalmenni.
Annars var ég að pæla um daginn að ég held að ég sé búin að finna ákveðið jafnvægi varðandi eyðslu og neyslu! Sko ég er ekki alveg sammála þeirri gífulegu efnishyggju sem er ríkjandi á Íslandi þótt það sé oft erfitt að fylgja henni ekki og ég er nú alveg búin að fá nóg af því að telja hvert einasta 1p sem ég á eitthvað sem ég datt í eftir að ég kom hingað til London. Hver og einn hefur auðvitað sinn staðal.....og auðvitað er grundvallaratriðið að eiga fyrir því sem eytt er.......minn er að mínu mati sparsamur en samt er ég farin að pæla meira í heildarmyndinni. Er ódýrt alltaf gott? Við erum alltaf að krefjast þess að fá ódýrar vörur en á kostnaði hvers? Kjúklingsins sem elst upp í helvíti, bóndans sem er undirboðinn eða verkafóksins eða þrælanna sem vinna fyrir nánast ekkert? Hver eru gæði þess sem við kaupum og er allt í lagi að kaupa ódýrt dót sem er svo bara hent? Ég fékk í dag catalogue sendan einungis með fair trade vörum. Ef við sýnum vörum virðingu erum við í raun að sýna fólkinu sem býr það til virðingu. Svo er nú alltaf hægt að deila um milliliðina sem verða feitari og feitari. HHmmmmm..........
Anyway..... ég ákvað að snúa vörn í sókn og í staðin fyrir að eyða nk þriðjudegi í eymd og volæði er ég að fara halda stórkoslegan fyrilestur um Drinking Water, Politics and Public Health. Þið megið gjarnan hugsa til min milli kl 10-13 þriðjudaginn 12. febrúar 2008 ......helst á ensku takk ég held að það hjálpi yes. Þessi fyrirlestur gæti orðið skrautlegur þar sem flestir í mínum bekk þekkja málefnið af eigin skinni og ég komandi frá Íslandi........hehehehhehe........nóg af vatni þar. Jæja ......aftur í lærdóminn public policy and politics bíður mín .......hlakka til að sjá ykkur eftir nokkra daga ;)

4 comments:

Anonymous said...

hæ hæ;) þú ert aldeilis í heimspekilegum vangaveltum vinkona! ég verð að undirbúa mig fyrir hittinginn... kynna mér hin ýmsu málefni tengd public health, efnahag og hinu og þessu hehe;) annars gætir þú kannski frætt mig um þetta varðandi eyðslu og neyslu... er alveg komin í gírinn... nenni bara ekki að skrifa allt sem mér dettur í hug í komment hehe;) vika í hitting;) hlakka mikið til! knús og meira knús frá Stínu

Anonymous said...

Deine Gedanken sind leicht anstrengend, kannst Du nicht einfach mal alles schön finden.Leben geniessen ist angesagt !!!!!!!!!!!!!!Viel Spass!!! beim Vortrag wir Drücken daumen und Pfoten Knús M+A

Milla said...

Hæ hæ vinkona alltaf jafn gaman að fylgjast með pælingunum þínum þarna úti, verst bara að geta ekki tekið meira þátt í þeim. Þegar ég hugsa tilbaka þá voru heimspeki umræður í lestinni hinar mestu gæðastundir!!!
En er nú farin að sakna nýrrar færslu. Heyrru og meðan ég man viltu senda mér heimilisfangið þitt...náttfötin þín eru enn hérna ;)

Anonymous said...

Hæ hæ mín kæra og takk fyrir síðast, stelpurnar voru mjög sáttar með slikkið, sérstakelga jarðarberjareimarnar, bara snilld:) Þú verður nú að fara leyfa okkur að fylgjast með hvað er að gerast þessa dagana.....knús DASK