Tuesday, 9 October 2007

Mercedes Mouldy Goodstuff

Í fréttum er þetta helst að sl laugardag fórum við the 3 amigos þ.e. ég, Nedia og Chiang Tsun íslendingafarar á Natural History Museum og skoðuðum RISAEÐLUR... eða allavegana það sem var eftir af þeim! Svakalega gaman að skoða safnið sem er í ákaflega fallegri byggingu. Ef ég ætti svakalega svakalega svakalega mikið af peningum og enginn væri heimilislaus þá mundi ég vilja búa í alveg eins 'húsi'. Eftir safnið skruppum við í Harrods og fengum okkur afternoon te og gerðum góð kaup.......heheheheheh. Sagt er að þú hafir ekki komið til London nema að hafa farið í þessa verslun svo formlega þá hef ég komið til London og maður minn lifandi hvað það eru til dýr föt.......er þetta ekki bara komið í einhverja vitleysu svei mér þá.
Á sunnudaginn var aftur haldið upp á afternoon tee....og svo var spilað Monopoly fram á rauða nótt. Nedia og Mustafa háðu grimmt einvigi sín á milli. Það er greinilegt að ég er á réttri hillu í lífinu og ætti aldrei að reka neinn business! Skít tapaði í síðustu umferðinni....susssum. En allavegana svakalega gaman að spila spilið á ensku og drekka te og borða skóns með sultu og rjóma með...stemmari!
Er svo búin að skella mér 2x i gymmið..............og hvað er þetta með englendinga og teppi? Haldiði að það sé ekki bara teppalagt undir hlaupabrettunum og hjólunum!!! Ég á nú bara ekki til orð............já bara ekki orð................sit bara og hristi hausinn.
Af kínversku þróuninni hjá mér er það að frétta að ég hef hlotið kínverskt nafn sem ég mun deila með ykkur um leið og ég verð búin að ná tókum á því og rétt í þessu var ég að elda kínverska súpu úr kínverskum sveppum.........svo mér líður veeeeeeeeeeeeeeelllllllllll ;)
Svo ég er búin að panta mér far til Íslands um jólin.......vvvííííííí´gaman gaman. Verð aðallega á Akureyri en stoppa eitthvað í borginni. Mikið verður nú gaman að hitta allt fólkið mitt.
Af skólanum er allt gott að frétta........tíminn flýgur áfram. Það verður bara að segjast að ég hef hlotið gott uppeldi hjá Ástu, Sylviane og Ebbu og HA og er alveg í stakk búin til að takast á við verkefnin....bæði faglega- og geðheilbrigðislega séð ! Þetta verður strembið en ég get þetta alveg.
Gaman að segja frá því að á hverjum þriðjudegi er ávaxta og grænmetismarkaður í skólanum þar sem hægt er að kaupa ferskar vörur á góðu verði........í dag fann ég mér gómsætar fíkjur og mangó auk engifers og ferskan maís......magnað að kjammsa á þessu næstu daga ;)
Adios

1 comment:

Anonymous said...

hei frend;) gaman að lesa meira bloggerí... about time;) veit ekki með að búa í svona mjúseumi... hefur þú ekki séð nigth at the museum? gaman að þú sért búin að fastbóka flug á frón um julen;) verður bara gaman að fá þig;) bæ skvís...hafðu það gott!