Góða kvöldið....það er neminn sem ritar hér frá Bretlandi.
Allt gott að frétta nema hvað það er búið að vera annsi svalt hérna síðustu dagana sem er ekki gott.......sérstaklega þegar ofninn í íbúðinni minni virkar ekki...og flestar skólastofur eru ííííssssssssskaldar...........þá dugar ekkert annað en íslenski lopinn............og þrátt fyrir lopann er ég komin með hálsbólgu!!!
Lenti í skemmtilegum samræðum við kunninga hérna varðandi íslenska nafnakerfið þ.e. föðurnafnið.......að endingu var niðurstaðan sú að ég væri dóttir Goodstuff!! Held að karlinn hefði nú bara verið ánægður með að vera kallaður Mister Goodstuff ;)
Á föstudaginn fór ég í kínverskt/taiwanskt matarboð og ég skal nú bara segja ykkur að þar var einfaldleikinn hafður að leiðarljósi. Allir komu með e-ð að borða.......dagblöð eru notuð sem dúkur sem síðan er bara rúllað upp og hent að máltíð lokinni...........dreifiblöð og bæklingar eru brotnir saman í litla kassa sem eru notaðir undir rusl...og klósettpappír notaður sem servíettur! Einnig er til siðs að tala ekki mikið meðan matast er heldur borða fyrst og ræða svo saman......í lok aðalréttar er borðuð súpa og alltaf er endað á því að fá sér ávöxt. Að endingu er veggirnir svo þunnir í breskum húsum að veilsan var búin rúmlega 10 þar sem kvartað var undan hávaða........og við vorum bara að rabba saman............ kommonnnnn!!! Í matarboðið mætti afmælisbarn dagsins svo auðvitað var sungið hátt og snjallt en mér til mikilla undrunar var klappað undir í svo hröðum takti að hætti asíubúa að ég fipaðist hvað eftir annað bæði við söng og klapp.......enda ekki tekið þátt í slíku áður. Þegar ég spurði hvers vegna í ósköpunum væri líka klappað ....var svarið að það eykur hávaðann!!! (þetta var samt mörgum tímum áður en kvartað var undan hávaða af nágrönnum)
Svo er bara skóladagur á morgun og hugmyndin er að skella sér á gigg í borginni með kvöldinu. Er búin að eyða deginum við lestur sem er bara mjög erfitt þó svo að efnið sé afar spennandi þá er einbeitingin ekki alveg komin í gír, vona að það komi með tíma og æfingu. Annars var ég að frétta það að og aðal svæðið til að finna sér kall væri í Færeyjum........já já.......Mutti hvað segir þú við því að fá Færeyskan tengdason? Er það betra en Tyrkneskur? Valva ............ég er búin með Poisonwood Bible!!! Tók bara ár .....
Næst ætla ég að segja ykkur allt um það sem ég er að læra.............það er sko goodstuff!
Cheers Sonja
Monday, 1 October 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Goodstuff og Miss Mercedes...þú hefur úr nógu að velja vinkona. Ekki nógu gott að vera að drepast úr kulda en mér heyrist þú hafa nóg af tilboðum sem eru til í að hlýja...
Bin für alle Schwiegersöhne offen, wenn sie nett........!!!!!!!!!! sind,keine mit geðvandamál !!!!!!!!!!;-)kv M+A
lýst rosalega vel á karlpening frá Færeyjum, það býður alveg upp á gott geim á Ólafsvöku :) væri þessvegna hægt að taka Norrænu og ná góðum túr úr því
ólafsvaka jei! já Sonja reddaðu þessu!;)
Já, held að þú ættir bara að breyta nafninu þínu í Mercedes Goodstuff :-) Líst ekki vel á að þú farir og finnir þér gaur í Færeyjum, finnst það svona eitthvað svipað og að fara til Grímseyjar að finna kall....held einhvern veginn að það sé ekki málið....en ég er greinilega bara uppfull af fordómum!!
kv
Valva
Ms. Goodstuff, ertu hætt að blogga? Ekki gleyma að þú hefur skyldum að gegna gagnvart okkur sem heima sitjum ;-)
Miss daughter of Mr. Goodstuff,
I think we have some copyright issue to discuss??
Taiwaness - Chiang-Tsun
Post a Comment