Sunday, 14 October 2007

Greetings earthlings

Well o well................tíminn líður áfram á ógnarhraða sem er hreint út sagt örlítið skelfilegt. Af mér er allt gott að frétta. Búin að eiga rólega helgi sem hófst með bíoferð á föstudaginn á myndina Resident Evil!!! hahahahha já já ég held að það segi nú bara allt. Þetta var að sjálfsögðu fjölþjóðleg ferð með fólki frá Spáni, S-Korea, Nígeríu, Úkraínu og Íslandi .......frá 16 ára aldri til 31! Áður en myndin hófst voru sýndar auglýsingar eins og gengur og gerist og svei mér þá ef ein Peugeot bíla auglýsingin var nú ekki bara tekin á Íslandi.......það gladdi mig að sjá grágrænu mosabreiðuna og þokuna ;) Á laugardaginn skruppum við svo í Camden á markaðina og þar var að vanda mikið af skrítnu fólki og margt að skoða........eins og t.d. Cyberdog búðin.. mér verður nú alltaf hugsað til Erlu minna og Mumma þegar sú búð er nefnd eða skoðuð .....og svo enduðum við gamla fólkið kvöldið á videoglápi í minni mygluðu íbúð.........svakalega spennandi. Ég talaði við nokkrar leigusölur á föstudaginn en því miður er lágmarksleigutíminn hjá þeim 6 mánuður svo en og aftur virðist sem ég verði hérna í holunni minni fram til 1.febrúar.
Ég gerði annars alveg svakalega merkilega og fallega uppgötvun á föstudaginn í ræktinni......en sá orðrómur hefur gengið um í skólanum að það sé nemi sem lítur út eins og Michael Scofield úr Prison Break þáttunum........................og OMG................það er SVOOOOOOOO SATTTTT.......þvílík fegurð!!!!.............og þvílík motivation til að fara í ræktinna....ójá.
Hafiði annars pælt í því að nánast allt sem við gerum kemur heilsunni okkar við. Ég meina að labba úti......því við gætum orðið fyrir bíl eða orðið fyrir mengun eða bætt líkamsástand okkar.........að versla í matinn því hvað er eiginlega í gangi með offitu og svo vöruframboð í búðum...............að horfa á sjónvarpið og allt það efni sem er í gangi þar sem ætlað er að hafa áhrif á okkur á einn eða annan hátt....til góðs eða ills. Allt endar þetta á pólítískum nótum um hvert stjórnvöld stefna í þessum málum og hversu áhrifamikil þau í raun og veru eru........þetta er ekki bara pólítík.........heldur svo miklu meira en það!
Og en og aftur er ég komin út í eitthvað nám sem erfitt er að útskýra fyrir öðrum.......kommon garðyrkjufræðingur á Íslandi.......iðjuþjálfi........og nú í heilsuefnlandi fræðum og lýðheilsu...............og heilsa, hvað er það eiginlega? Hvernig skilgreinum við heilsu? Spæló það er nefninlega eiginlega ekki hægt, rétt eins og skilgreiningin á heilsuefling (Health Promotion).........það er allavegana pottþétt ávísun á falleinkunn í skólanum að vitna til WHO skilgreiningarinnar!
Já meðan ég man Stína mín og Bebba .......börnin ykkar eru að gera alveg stormandi lukku hérna á dagatalinu góða. Margir hafa spurt mig hvaða fallegu börn þetta eru og auðvitað segi ég að þetta séu nú að hluta til mín börn ;) Yes these are all my beutiful children in Iceland (lesist með sterkum Íslenskum hreim!)
Nóg í bili.......over and out

5 comments:

Anonymous said...

hellú fellow earthling! í pusjó auglýsingunni, var þetta nokkuð grænn peugeot með númerið AM 183??? sem þeysti um grundir og koppa? mér finnst það reyndar afar líklegt... þvílík eðalkerra... draumur hvers bílstjóra..eða var það ekki annars...;/ hehe
Getur þú ekki titlað þig sem garðiðjulýðheilsufræðing... hvernig svo sem það er á ensku... dóntnó...
Mikil snilld að hafa hvata til að fara í ræktina... spurning hvort þú getur fjallað um það í lýðheilsunáminu... hvernig hægt er að hvetja lýðinn til bættrar heilsu... Hver er þinn Michael Scofield questionnaire.
Takk fyrir hrósið... tek það til mín bæði hvað varðar HM og svo finnst mér ég alltaf eiga pínulítið í AK líka;) en leiter skeiter... knús og saknaðarkveðja frá Stínunni

Anonymous said...

hehehehe ein greinilega á fullu í skólapælingum....hljómar svona eins og "Hvað er iðja?" tímabilið.
Ég tek undir með Stínu, held þú sért búin að finna the secret til að viðhalda góðri heilsu. Málið er bara að hafa nógu góða hvata og nógu góða umbun. Þú ert búin að finna hvatann og þá er komið að umbun...go and get him girlfriend ;)

Anonymous said...

Ég man eftir gaurnum í rauðu peysunni í Laugum sem var alveg að hjálpa til með mætingarnar...fór svo út að borða á lau og þar var hann mættur, spurning hvort það hvetur mig til að fara oftar út að borða eða oftar í ræktina...í mínu tilfelli þarf ég auðvitað bara að fara einu sinni til að fara oftar en ég geri í dag

Sonja Stelly said...

Tvilikir snillingar sem eg a fyrir vini....hehehehe

Unknown said...

Sælar ég hef vissulega reynslu af myglunni kom nokkuð óhult út úr henni...getur kannski rukkað inn í heimabíóið og safnað fyrir viðgerðum. Heyðu heilsa segirðu flört er t.d. mjög heilsusamlegt sem er viðurkennd lýðheilsa á líkamsræktarstöðum.