Af hverju nota Íslendingar uppþvottabursta en ekki svamp þegar þeir þvo upp óhreina leirtauið sitt? Ég hef alltaf tengt að vaska upp með svampi við gamalt fólk í Þýskalandi þar sem ég man að Omi mín vaskaði alltaf upp með svampi! Eftir að hafa lent í stappi við fólk sem neitaði að vaska upp heima hjá mér þar sem ég ætti ekki svamp skellti ég mér einn eftirmiðdaginn út í verslun hér skammt frá og keypti sett með tveimur svömpum í..........og prófaði.......og viti menn....þetta er nú bara ekki svo slæmt....ég t.d. næ te röndum af bollunum mínu en það var eitthvað sem bleiki uppþvottaburstinn minn réð ekki við...............það er greinilegt að ég læri svo lengi sem ég lifi :)
Vissuð þið að í Japan hefur fók það að atvinnu að ýta fólki inn í lestar í neðanjarðarlestakerfinu....................ég er ekki að djóka. Það er svo margt fólk sem nýtir sér þennan samgöngumáta að það þýkir ekkert óeðlilegt að sjá lestar renna í eða úr hlaði með kramin andlit á hverjum einasta glugga. Ef ég er í vondu skapi þá sé ég þetta bara fyrir mér og það klikkar ekki.............ég brosi. Spurning um hvort draumadjobbið sé fundið.....að troða fólki í lestar.....ýtandi á rassa allan daginn. Nei þá held ég að það sé nú mun betra að vera mennskt umferðarljós í San Marínó.
Annað sem kemur mér í gott skap og mig langar til að deila með ykkur er lag nokkurt sem félagi minn Guðjón otaði að mér um árið .........vona að það birtist hér :
Annars vona ég að þið hafið það súper gott og Mutti ég panta sauerkraut um jólin.....algjört möst þar sem ég missi af því um áramótin........hélt aldrei, aldrei, aldrei að ég mundi sakna þess að fá ekki súrkál um áramót........
Tuesday, 16 October 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Takk fyrir afmæliskveðjuna. Skvísan alveg með stálminni. Gaman að lesa um ævintýrin þín í UK, hafðu það gott.
Já, spurning hvort ég verði að fá mér svamp til að díla við kaffiklessurnar hans Valdimars! Annars heldur Valdi að hann sé í samkeppni við Millu um að fá japanina í gistingu. Heyrðist hann jafnvel vera að spá í að sparka mér úr rúminu svo hann yrði samkeppnisfær....veit samt ekki hvað þeim finnst um að sofa upp í hjá Valda ;-) ps. ég er ofurhetja í Boot Camp!!!
Hefuru prófað grænan uppþvottabursta? Kannski hann virki betur en sá bleiki!!!
Post a Comment