Rosalega fínir dagar hérna á Akureyri. Er aðallega búin að vera í garðvinnu síðustu dagana í sól og blíðu. Milla massi leit við í dag í garðinum og tók rösklega til hendinni. Takk Milla mín.....þú ert afbragðs garðyrkjukandídat og þinn maður góður bensíntittur! Í gær fórum við gamla crewið á Greifann í far well snæðing og ég fékk í kveðjugjöf þetta líka rosalega flotta dagatal frá þeim þar sem ALLT er inná. Ekki nóg með að allir afmælisdagarnar eru taldir upp heldur stendur líka t.d. þegar ég á að hringja í vini mína eða gera mér glaðan dag :) vvvvvvííííííí. Magnað max. Eftir matinn fórum við kellurnar til Stínu fínu, Hauksa og Hönnu Marín og lásum gamla italyidju bloggið góða sem okkur fannst ógeðslega fyndið og hlógum hellings mikið.....those were the good old days eða kannski ekki því að ég man enn hryllinginn við þetta helv....lokaverkefni jæks.......
Er búin að panta mér far út til London. Brottför verður þann 30.júlí 2007 kl. 5.50 Am. Þar sem vaxandi spennu gætir í mér held ég að ég verði ekki í nokkrum vandræðum með að vakna!
Jæja best að fara að drífa sig og færa úðarann svo hann nái til allra grasfræjann því eins og allir vita þá er vatn forsenda þess að fræ spíri!
Friday, 20 July 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment