Tuesday, 24 July 2007

The babysitter




Ég er þeirrar gæfu njótandi að passa Mikael litla frænda minn í þessari viku. Þvílíkt eindæmis fallegt og skemmtilegt barn. Þótt hann sé mikill orkubolti þá á hann líka til að smella á mann og annan kossi þegar minnst varir og hann er duglegur að knúsa okkur í fjölskyldunni :) Enda segir hann oft "ég kyssa þig, ég góður við þig".

Mikael eða Mikki superman eins og hann segist heita hefur haft þó nokkrar áhyggjur af Omi sinni þar sem hann segir að hún kunni ekki að tala! Nokkur tími fór í gær í að ræða að Omi talaði alveg, en bara þýsku. Það fannt Mikael skrítið þar sem hann segist eiga heima á Íslandi!!! Hann er nú samt komin með nokkur orð á fáum dögum svo þetta er nú ekki alveg ómögulegt. Mikael er líka mikið að hugsa um og reyna að skilja ættartengslin þ.e. hver er mamma hvers o.sfrv. Hann sagði hátt og snjallt við pabba sinn í dag að Omi væri mamma hans....alveg kominn með það áhreint. En þegar ég segist eiga systur sem heiti Stella þá segir hann bara "já, ég líka" enda er Stella alveg í rosalegu miklu uppáhaldi hjá Mikael og finnst honum frábært að fara í heimsókn til hennar. Það fyndna er samt að hann heldur að Ingimar sé pabbi Stellu.....hehehehheeh.


Well gæti skrifað margar síður um þetta litla gull en kýs að nema staðar hér og kveðja með orðunum "Þetta skítið mör" og fyrir þá sem ekki skilja þá þýðist þetta sem "þetta er skrítið smjör"!

5 comments:

Stella said...

ja ja þetta er flottur frændi:)
Heyrðist segja: viltu leika vi mig, pínu dund?"

Unknown said...

H� Sonja. Var b�in a� gleyma s�unni �inni � nokkra daga...! Fullt fullt af f�rslum, l�st einstaklega vel � hva� �� ert dugleg a� blogga og svo �tla �g a� SKAMMA �ig fyrir a� flj�ga ekki fr� Keflav�k. �g � eftir a� kve�ja �ig og kn�sa �ur en �� fer� �arna...�� �arna...�arna...�� M�r er ekki skemmt! Ekki gott m�l ;-)

Unknown said...

flott faersla!

Anonymous said...

Hæ vinkona.... er alltaf að kíkja og athuga hvort þú sért búin að skrifa eitthvað... vona að íbúðin hafi verið fín og þú sért í rólegheitunum að koma þér fyrir;) hugsa til þín... knús frá Stínunni

Anonymous said...

Sæl Sonja mín
Von að íbúðin hafi verið fín þrátt fyrir teppið á baðinu.... Hlakka til að heyra meira frá þér, þú ert góður penni.
knús