Sunday, 24 August 2008

Dauði og djöf....

Þá er kellan orðin ein í kotinu þar sem húsfélagar lögðu af stað áleiðis til Skotlands árla morguns, áður en að augun í mér urðu aðeins rök af stolti af silfrinu en líka af eftirsjá gullsins. Magnað max og fyndið hvað þetta æsir í mér þjóðarstoltið...auðvitað, því við erum bara rétt um 330 þúsund einstaklingar (fyllum fugla-hreiðrið í Beijing 3,5 sinnum) EN SAMT getum við ótrúlegustu hluti.
Annars er allt skítt að frétta, er plöguð af vöðvabólgu og andvöku, magapínu og skapvonsku. Get nú virkilega einbeitt mér að áráttu- og þráhyggju með góðum skammti af neikvæðum hugsunum og Bingó.........farið að kanna NHS á eigin skinni. Ohhhhhhhhhhhhhh........ég þoli svo illa að hafa engum skyldum að gegna. Ég get verið í náttfötunum mínum í heila viku og það mundi ekki skipta neinu máli, sama hvort ég greiði mér eða ekki eða tala við einhvern eða ekki. Nú halda örugglega þeir sem þurfa að vakna kl 7 í fyrramálið og drífa sig í vinnuna að ég sé nú illa ruglaða gellan að njóta þess ekki að hafa ákveðið frelsi. En það eina sem ég þarf að gera krefst þess að ég sitji á rassinum og skrifi og einu sinni í mánuði heyri ég í leiðbeinandanum mínum. OMG.......hvað þetta er einhæft og einangrandi. Ég sakna svo stemmningarinnar í HA og elsku félaga minna Millu og Döggu (þó svo að við höfum verið aðeins tæpar líka). Ef ég hreyfi mig ekki, þá get ég ekki sofið og fæ vöðvabólgu, ef ég get ekki sofið og er með höfuðverk verð ég geðvond. Lausnin hlýtur því að liggja í því að ég drífi mig út .......eeeeeeeeeen ..........
Lenti svo í þessu frábæra út að borða dæmi í gær. Í fyrsta lagi getur fólk sem er við nám á Englandi greinilega ekki druslast til að tala ensku. Ég skil bara ensku, þýsku og íslensku. Ef fólk talar önnur mál þá er það að útiloka mig frá samræðum sem mér finnst bara ógeðslega dónalegt og ég er orðin ansi þreytt á því. Drífa sig að sleppa því að bjóða mér ef markmiðið er að tala móðurmálið. Í öðru lagi hlýtur að vera hægt að tala um annað en hvaða litum þú átt að klæðast sem hæfa best þínum litartóni, hvaða hrukkukrem best er að nota, kynhneigð fólks, drykkjusiði og hvort Julia Stiles sé ljót eða ekki. Allt hlutir sem mér er bara skít sama um. Djöfull er ég orðin gömul.

4 comments:

Anonymous said...

Hæ sæta, hvað er að heyra... Fáðu Þjóðverjann í þér til að skipuleggja þétta stundaskrá fyrir allt sem þú þarft að gera svo þú klárir þetta með stæl og án þess að verða "ensam".Spurning um að tékka á því hvort Milla og Dagný geti ekki kíkt yfir til þín og veitt þér móralskan stuðning í það minnsta í gegnum þetta:) Hafa þær á MSN 24-07 alla vega. You go girl!!! mbk Sísý

Anonymous said...

mér sýnist við vera í nokkuð svipaðri stöðu vinkona, nema þessi sem ég þarf að hitta ögn örar en þú er ljósmóðir en ekki leiðbeinandi. Annars er stundaskráin þannig að ég þarf að leggja mig og hvíla mig til skiptis en ekki sitja, liggja eða ganga of lengi í einu því þá klofna ég í sundur um mig miðja. Ég þarf ekki að klæða mig eða að greiða fyrr en rétt fyrir fjögur til að brussast út á leikskóla að sækja grísinn. Þangað til er ég ein heima að reyna að ákveða hvort ég á að horfa á Vini eða hanga í tölvunni. Held samt að maður eigi eftir að sjá þetta letilíf í hillingum eftir nokkrar vikur af svefnleysi og þeirri "örlitlu" breytingu sem verður á þvi að eiga eitt barn og svo allt í einu þrjú.
Svo ég segi bara njóttu úfna hársins og náttbuxnanna, þessi tími kemur ekki aftur :)

Unknown said...

Er ekki málið að berja sig í rútínu? Byrja á léttu skokki/göngutúr og haga honum bara eftir veðri. Setjast svo og skrifa til hádegis, fá sér svo gott að borða og horfa á skemmtilegan þátt. Halda svo áfram til 2-3 kíkja þá aðeins út og breyta til. Vera svo dugleg fram að kvöldmat og eftir það er quality time..?

Annars get ég lítið sagt þér þar sem eirðar og aðgerarleysi hefur ekki böggað mig gegnum tíðina :|

Veit bara að þýska stálið þolir mikinn hita og kemur alltaf níðsterkt úr hverri raun :)

Hafðu það bestastast!
Gaui

Sonja Stelly said...

Hahahhahah þakka ykkur ;)