Sunday, 13 July 2008

Ísland og áfengi í algjöru rugli

Finnst nokkuð merkilegt hvernig ákveðið hefur verið að bregðast við ´drykkjuvanda´ á tjaldstæðum á Íslandi. Spurning hvort þetta sé nú ekki alveg komið út í öfga!?! http://b2.is/?sida=tengill&id=289350 .Ég hef sjálf tekið nokkrar næturvaktir sem tjaldvörður og verð að segja að það er með eitt af því hryllilegasta starf sem ég hef unnið...............verra en að skrapa innyfli úr grálúðu forðum daga á ÚA. Aldur og barnafjöldi segir nú ekki allt um það hvernig fólk kemur til með að haga sér á tjaldstæðum því áðurnefnt starf mitt sem tjaldvörður var m.a. á fjöldskyldusvæði að tilefni fótboltamóts fyrir börn...............og OMG......hvað sumt ´fullorðið fjölskyldufólk´ var haugdrukkið, dónalegt, tillitslaust og ruddalegt bæði í minn garð og annarra tjaldsvæðagesta. Stenst þetta mannréttindarlög eða hvernig er það.....geta fyrirtæki meinað ákveðnu fólki um þjónustu vegna aldurs og barnafjölda? Ég var nú stödd hjá Alþjóðadómstólnum í Hag um daginn en ljáðist að kanna þetta....hehehe. Svo var ég nú líka að horfa á Schindlers List í gær og er kannski svolítið paranoid þess vegna en hver er munurinn að meina fólk þjónustu vegna þess að það er með stórt nef eða að það sé barnlaust?
Af öðru mun paktískara.........ef einhver á SPSS rit á íslensku þá væri einstaklega ánægjulegt að fá það rit lánað.................nema ef Dagný Bald langaði kannski að rifja upp gamla takta....ha!
Svo er líka eitt stykki gult herbergi til leigu í V-London frá 14 júlí-17 ágúst ef ykkur langar að skreppa............hafði hugsað mér að skilja eftir bauk í herberginu fyrir frjáls framlög!
Sjáumst bráðum

3 comments:

Anonymous said...

Any time mín kæra...SPSS ekki málið.....Rúlla því upp......

Sonja Stelly said...

Tek þig á orðinu vinkona ;)

Anonymous said...

sps... hvað segiru? ;) fullt af good times rifjast upp;) stutt í hitting vinkona STUTT!!!!!!!!