Það er búið að vera einhver hundur í mér síðustu daga..........tengi það algjörlega stressi varðandi lokaverkefnið........en nú er ég búin að skila af mér pappírum til siðanefndar Brunel og senda inn tilkynningu til Persónuverndar og þá er bara að bíða og vona að allt gangi upp og verði samþykkt. Hef núna einn mánuð til að klára heimildarsamantektina og aðferðafræðikaflann.
Var að átta mig á því að fyrir þessa annars fínu þriggja herbergja, um 80 fm, íbúð sem við erum að leigja þá erum við að borga um 180 þúsunda íslenskar krónur fyrir, á 4 vikna fresti (ekki einu sinni mánaða! og engir innifaldir reikningar). Eins gott að ég finni mér vel launaða vinnu þegar ég kem heim, nú eða giftist til fjár sem náttúrulega hefur alltaf verið planið. Því var ég glöð þegar eigandinn tilkynnti að hann væri búinn að kaupa nýja þvottavél sem kemur á mánudaginn.....því fyrir þennan pening nenni ég nú ekki að handþvo!
1 comment:
Ihr habt wenigstens etwas zum Erzählen, hier gibt es nur totr Eisbären ,-)
Post a Comment