Tuesday, 6 May 2008

Dýraslagur

Dagurinn í dag hófst með tilraun til að skokka í görðum nágrenisins. Á leiðinni ´heim´varð ég vitni að því að stór hundur réðst að einum litlum og beit hann þéttingsfast í hnakkadrambið........eigendurnir æmtu og skræmtu og áttu fullt í fangi með að koma höndum um þá félagana og reyna að losa litla guttann úr gini þess stór. Eins og sönn dýraáhugamanneskja sem hefur orðið vitni að einum og einum hundaslag þá hljóp ég til og hugðist beita þeim aðferðum sem mér hafa verið kenndar. Hafa verður í huga að þegar hér er komið við sögu þá var ég búin að skokka í 20 stiga hita og sól í um 30 mínútur og andlitið á mér því orðið eins og eldfjall sem er að gosi komið og þannig útlítandi rauk ég til og greip fagmannlega um afturfætur stóra hundsins ....og híf oppp..............lyfti honum upp.........samkvæmt kokkabókum eiga hundar sem teknir eru upp á afturfótunum að finna fyrir jafnvægisskerðingu og sleppa öllu því sem þeir hafa í kjaftinum................en nei það gerði þessi hundur ekki!!! Svo þarna stóðum við þrjár með tvo hunda á lofti......og þá voru góð ráð dýr.......heheheheh...sem betur fer kom vaskur maður aðvífandi og með nokkru afli var loksins hægt að frelsa litla hvutta sem virtist ekki hafa orðið neitt meint af..............og ég fékk skyndilega ofur-orku til að skokka eins og eldibrandur í burtu .....með skottið á milli lappanna.........what was that crazy turists doing, pulling my dog on his legs!!!! Go home bloody turist!

Eftir að hafa eytt afganginum af deginum í sólinni á svölunum í friði við dýr og menn með analytical statistics mér við hlið var tími til kominn að fara inn til að kanna skaðann á kroppnum þar sem einhver brunalykt var farin að gera vart við sig. Ég varð vör við einhver undarleg hljóð sem komu frá svölunum en sá ekkert þegar ég leit út. Áfram héldu hinsvegar hljóðin og þegar ég athuga málið betur haldið þið að kráka hafi ekki bara gert sig heimkomna á svölunum og var í óðaönn að gogga í tómataplöntu pottinum mínum!!!! Ég er búin að annast kryddjurtirnar mínar af natni og alúð frá því í vor....tala við þær á hverjum degi og fagna hverju nýju grænu blaði sem kemur á þær. Tómataplönturnar voru tiltölulega nýbúnar að spíra og ég setti þær úr í gær! Kráku skömmin náði að hræra til í pottinum með þeim afleiðingum að helmingurinn af plöntunum lá eins og hráviður og mold út um allt. Þetta fékk mig til að hugsa um hvort ég ber sterkari taugar til gróðurs eða dýra. Hefði ég snúið krákuna ef ég hefði náð henni? Allavegana hef ég sagt krákunum stríð á hendur ..eða vængi......og hyggst verja mínar plöntur af mætti. Hvað var hún líka að gera í pottinum??? Læt mynd fljóta með af varúðarráðstöfunum ...........kung fu!

4 comments:

Stella said...

lol +lol:)
Dásamlegur penni:)

Anonymous said...

hehehehehe...sé þig alveg í anda með þennan hund ;-)
kv
Valva

Anonymous said...

das ist aber lustig ;-)

Milla said...

hahahha Sonja alltaf til í að redda, litli bjargvættur. Finnst nú samt frekar skrýtið að hafa ekki verið neitt hrædd...kræst ráðast á morðóðan ókunnugan hund. Þú ert náttlega hetja mín kæra vinkona