Thursday, 24 April 2008

grænar líkamsræktarstöðvar

Þegar ég var að puða í gær á róðrarvélinni þá fór ég að hugsa um alla þá orku sem ég var að gefa frá mér og hvernig hægt væri að nýta hana. Þar sem ég borða meira en líkaminn þarf á að halda þarf ég að brenna afganginum til að lenda ekki í hópi þeirra fjölmörgu á Íslandi sem nú flokkast undir að þjást af offitu. En er ekki hægt að nýta þessa orku sem losna úr læðingi í þeim fjölmörgu líkamsræktarstöðvum sem í boði eru? Get ég endurgreitt umhverfinu fyrir þau súkkulaðibréf sem ég skil eftir mig, með því að framleiða umhverfisvænt rafmagn?
Mörg tæki í hefðbundnum líkamsræktarstöðvum eru drifin áfram eða tengd rafmagni á einhvern hátt eins og t.d. hjól, hlaupabretti, cross-trainer og hvað þetta nú allt heitir. Væri ekki hægt að gera líkamsræktarstöðvar sjálfbærar á þann hátt að tækin verði drifin áfram af þeirri orku sem framleidd er í stöðinni sjálfri?

1 comment:

Anonymous said...

das zu untersuchen wäre Deine nächste Aufgabe an der Universität Brunel, als Doktorarbeit !!!!!!!!;)