Jæja................þá er komið að ferðasögunni
Sunnudaginn 16. mars lagði fríður hópur fjögurra námsmanna af stað með EasyJet frá Gatwick flugvelli til Barcelona á Spáni. Sól og 17 stiga hiti tók á móti okkur í þessari afar fallegu og vel skipulögðu borg og pálmatréin sveifluðust í golunni ;) Næturnar voru hinsvegar ekki alveg jafn notanlegar þar sem íbúðin sem við leigðum var ekki með kyndingu sem virkaði svo lítli rafmagnsofninn var settur í botn og með 4 teppum hafðist þetta. Í Barcelona er hægt að finna allt sem hugurinn girnist; strönd, menningu, fagran arkítektúr eins og Gaudi, verslanir (t.d. Camper) og fótbolta! Sá Eið Smára aka á brott eftir æfingu á velli Börsunga........hann virtist ekkert voðalega kátur.
Sunnudaginn 16. mars lagði fríður hópur fjögurra námsmanna af stað með EasyJet frá Gatwick flugvelli til Barcelona á Spáni. Sól og 17 stiga hiti tók á móti okkur í þessari afar fallegu og vel skipulögðu borg og pálmatréin sveifluðust í golunni ;) Næturnar voru hinsvegar ekki alveg jafn notanlegar þar sem íbúðin sem við leigðum var ekki með kyndingu sem virkaði svo lítli rafmagnsofninn var settur í botn og með 4 teppum hafðist þetta. Í Barcelona er hægt að finna allt sem hugurinn girnist; strönd, menningu, fagran arkítektúr eins og Gaudi, verslanir (t.d. Camper) og fótbolta! Sá Eið Smára aka á brott eftir æfingu á velli Börsunga........hann virtist ekkert voðalega kátur.
Eftir 4 góða og nokkuð sólríka daga í Barcelona var haldið af stað í bílaleigubíl til Madríd. Reyndar var vesen með bílinn þar sem 'rafmagninnstungan' virkaði ekki sem kom sér afar illa þar sem gps tækið sem við vorum með gengur fyrir rafmagni! Eftir smá þras og málalengingar þar sem blóðheitur Sýrlendingur kom sér vel fengum við nýjan bíl og sem betur fer sjálfskiptan þar sem aðalökumaðurinn er ekki vanur beinskiptum bílum.
Í Madrid var dvalið í 3 nætur í nýtísku íbúð við þröngan kost......afar þröngan....Páskanir settu smá strik í reikninginn með lokunum en við náðum samt að skoða borgin auk þesssem við skelltum okkur á Flamengo sýningu og skruppum til Segova, sem er algjör menningaborg og lentum í þvílíkri snjókomu........Á SPÁNI Í ENDA MARS!
23. apríl var svo haldið árla árla árla morguns með flugi til Rómar. Í ausandi rigningu á leið í íbúðina sem við leigðum var ég greinilega fyrir einhverjum karlinum sem tók á það ráð að sparka í sköflunginn á mér...........sem betur fer hrækti hann þó ekki í eyrað á mér. Róm er órtúleg borg að mínu mati......skítug, full af fólki og ekkert merkileg fyrir utan þær rosalegu minjar og byggingar frá fyrri tíð, og ég sver að finna fyrir mætti þess veldis sem áður var er hreint út sagt rosalegt og eitthvað sem allir ættu að prófa. Nedia fagnaði þeim árangri að verða 30 ára og var haldið upp á það með því að fara í óperunu til að sjá Tosca. Þetta var reyndar að mig minnir mín fyrsta og fyndnasta ópersýning sem ég hef farið á enda allt á stúdenta budget-i.......hehehhhe....Aðalgaurinn var nú þrusugóður en Tosca var ekki nógu sannfærnadi í hlutverki sínu sem fögur og blóðheit senjoríta en hápunktur sýningarinnar var samt gaurinn sem lék lögreglustjórann........því hann var kínveskur!........sama hvað ég reyndi þá gat ég ekki gleymt því að hann var kínverji og leit því engan veginn út sem ítali og í hvers skipti sem hann söng hristist bekkurinn í takt við hláturgusur herramannanna í ferðinni Chiang-Tsun og Bilal.
Frá Róm var svo haldið af stað til Tuscany í bílaleigubíl. En og aftur lentum við í þrasi þar sem bílaleigan lét okkur hafa þennan rosalega kraftlausa opel fjölskyldubíl sem var ekki alveg það sem pantað var, en þurftum að játa okkur sigruð! Enn og aftur kom blóðheiti sýrlendingurinn sé vel í agressivu umferðinni í Róm og sló held ég hreinlega ítölunum við í aksturlagi. Tuscany er allt það sem kvikmyndir og ljósmyndir sýna og svo miklu meira en það......svo fallegt og maturinn svo góður. Skelltum okkur Flórens einn daginn, til Pisa og á vestur ströndina til Clinque Terra annan og Siena þann þriðja. Það er nokkuð ljóst að ég á eftir að mæta aftur á svæðið og drekka meira rauðvín með ostum, olífuolíu og balsamik ediki og hráskinku........nammmi namm, þarf ekkert meira en það.
Síðast áfangastaðurinn var svo skammt frá Feneyjum á vinekruvillu. Tókum einn dag í Feneyjum og annan í litlu sjávarþorpi. Því miður náðum við ekki að fara til Verona og Lake Garda þar sem einn ferðafélaginn varð fyrir því óláni að ATM vélin gleypti kortið hans og tími fór í að það ná því til baka. Ef þið eruð að leita að sérstökum, fallegum og friðsælum stað sem er í um klukkstunda akstri frá Verona og Feneyjum með ótrúlega góðri þjónustu þá mæli ég með þessum: http://www.caorologio.it/
Í þessari ferð hef ég lært og gert ýmislegt.........til dæmis eytt dágóðum tíma í að finna mosku á föstudegi í Madrid, að spagetti bolognese er í raun ekki til, sofið í rúmi með kvennmanni í 16 nætur, beðin um að hætta að segja takk fyrir, farið í kapphlaup upp spænsku tröppurnar í Róm, verið vísað út úr verslun í Feneyjum, lent í sjókomu og sólbrunnið, hjólað í Pedua, borðað kvölmat kl 10 að kveldi, þráttað um við karlmann hvort konur ættu að keyra strætó eða ekki og margt margt meir
2 comments:
Hahaha, já gott að hann hrækti ekki í eyrað á þér :)
Frábær lesning, litríkar persónur, óvenju góðar fléttur og léttur og skemmtilegur endir. Hefði verið frábært að fá nokkur myndbrot af aksturslaginu svona til fræðslunota. Takk fyrir sögu og myndir!
Heißer Frühling Fluß dieses Buch
Gaui
gaman að lesa ferðasöguna, endalaus ævintýri.
kv Guðbjörg
Post a Comment