Pæliði í því að ég er búin að búa hérna úti í meira en 7 mánuði! Veran mín er því u.þ.b. hálfnuð hér í landinu sem kennt er við Eng . Ótrúlegt en satt.
Á hverju einasta ári þarf ég að fylla út skattaskýrsluna mína...og á hverju einasta ári langar mig að rífa af mér hárið og öskra þegar ég reyni að fylla skýrsluna út. ARg og úlfaldi.........ég veit að mest af öllu er nú þegar í skýrslunni.......en ekki húsaleigan.......og ekki hvað ég skulda mikið í íbúðinni minni og ekki hvað ég á í bankanum og ekki bensínpeninga mótframlagið og ekki hitt og ekki þetta..............og það skiptir ÖLLU máli að fylla þetta helv.....rétt út því annars tsjínnng tsjíng €$...borga borga!
Afar þreyttur student kveður að sinni úr myglunni í Uxbridge (verð nú bara að láta vita að þegar ég tók eina mynd niður af mygluvegnum.......getiði hvað var á bakvið hana...........jahá .....ferhyrnd MYGLA! mjög fyndið...tók mynd af þessu og vonast til að geta skellt henni hérna á bloggið við tækifæri)
Knús og koss Sonja
Thursday, 6 March 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Gangi þér vel með skattaskýrsluna Sonja mín. Mundu bara að það er skömminni skárra að fylla það út en þjónustuferli.. og hananú!
Respekt vom Schnee und von der Kälte
Guðjón
hehehhehe laukrétt Guðjón...kræst þjónustuferlið :) en mundu bara Guðjón minn...þú átt aldrei eftir að nota þetta þjónustuferli þegar þú byrjar að starfa. EN skattaskýrsludæmið virðist ætla að fylgja manni til æviloka....skil þig svo vel Skoooon
Hva...það er svooo gaman að fylla út skattinn. Get ekki annað en hlakkað til ;-) Best er að opna eina vínflösku um leið og maður loggar sig inn á þjónustusíðuna og þegar þú sendir inn framtalið er þér farið að standa á slétt sama þó íbúðlánin þín hafi hækkað um 2 milljónir í verðbólgunni á milli ára ;-)
Post a Comment