Mín kæru
Þá er ég komin aftur í mygluna og rakann eftir 10 daga ævintýrajól á Íslandi ásamt félögum mínum frá Taiwan. Ég er endanlega búin að komast að því hvað ég á góða að.....frábæra fjölskyldu og góða vini. Mutti mín er náttúrulega bara snillingur að hýsa okkur þann tíma sem við vorum á Akureyri og dekra við okkur endalaust ;) einnig sýndi hún frábæra leikni þegar ég var að gosi komin eftir að vera búin að hlusta á 100000000 þúsundasta skiptið á hvað allt er dýrt og lítið á Íslandi eða hvað ég borða mikið.....hehehheheh smávægilegir örðugleikar þegar þétt er búið saman yfir langan tíma!
Milla kellan og Gummi sýndu mikinn höfðingsskap og hýstu okkur í Reykjavík í 3 nætur þrátt fyrir veikindi og veisluhöld og kann ég þeim miklar þakkir fyrir. Valva og Valdi héldu magnað matarboð að hætti vesturbæjarbúa og Valdi sýndi mikið hugrekki og þol í bensín björgunarleiðangri við annann mann. Guðjón skemmti bæði innlendum sem erlendum við Gullfoss og Geysi og svo var litið við á Landspítalnum til að taka púlsinn. Stína hin 30 ára og móðir 1 árs gamallar stúlku bauð okkur í fína afmælisveislu, Markús bauð upp á laufabrauð og sveittan hammara að hætti vesturlandabúa í nýju glæsikerrunni sinni. Stella og Ingimar voru góð með slátrið og hákarlinn og krakkarnir sýndu alvöru snjó-takta í jólasveinabrekkunni. Svo var heljarinnar fjölskyldu jólaveisla með öllu heimalöguðu til að setja punktinn yfir i-ið á skemmtilegum jólum. Í sömu veislu þökkuðu félagar mínir sérstaklega fyrir að hafa fengið tækifæri til að koma til þessarar eyju sem þau kölluðu paradís........og við þessu fögru orð fyrirgaf ég allt það sem ekki var áður nefnt um okkar fallega land og þann mat sem ekki var hrósað eða þakkað fyrir og prumpið við leiði föður míns.
Takk kærlega fyrir að taka svona vel á móti okkur og rosalega þykir mér vænt um ykkur, hlakka til að hitta ykkur almenninlega á febrúar.........
Thursday, 27 December 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ nach London, ich fand alles ganz lustig und nett, das waren schöne Weihnachten, grüsse an Deine Freunde aus dem teurem Norden, ansonsten sind wir sowieso die Besten!!!!!!!!Das wissen nur nicht alle ;-) M+A
Hæ vinkona;) hlakka til að hitta þig líka í febrúar... meira almenninlega;) knús Stínan
Post a Comment