Monday, 24 September 2007

Neminn

Hádí
Finnst eins og ár og aldir séu síðan ég bloggaði síðast.
Í síðustu viku hitti ég semsé bekkinn minn.............sem er ALLT öðruvísi en bekkurinn minn í HA! Mér líkar vel það sem ég hef séð varðandi námið og kennarana og svo hefst námið á morgun kl 10 (9 að ísl tíma) og þá er ég orðin opinberlega nemi :) hihihihihih
Við Valdís áttum aldeilis góðar stundir hérna í Uxbridge og hún stóð sig að sjálfsögðu með sóma í vörninni og er því komin með feita og góða MSc gráðu í vasann.....til lukku skvís og vonandi skemmtir þú þér vel í baunalandinu. Svo er ég nú bara búin að vera menningaleg svona í dauðatímanum ...fórum í British Museum um daginn og það er nú bara allt annað að skoða múmíur með Egypskum gaur í fararbroddi nú eða kínverska kodda sem langamma vina minna notaði.....merkilegt. Skrapp líka í China Town, og SOHO hérna í London og það var nú bara áhugavert að skoða matvörubúðirnar.........what the fu.....við erum með svo einfalda matarflóru á Íslandi að það er nú bara fyndið, hljótum að geta nýtt eitthvað meira í matargerð!!!!
Í gær var svo farið í austurhluta London, Brick Lane og Spitalfieldmarket sem er þekkt fyrir unga hönnuði sem eru að reyna að koma sér á framfæri........skannaði bara í þetta sinn enda óþolinmóðir karlmenn með í þetta sinn en við kellurnar strax farnar að plana aðra ferð og þá verður nú gert eitthvað annað en bara skannað. Kíktum svo á nágrenni London Eye og fengum okkur Japanskan mat kl. 7.10 pm þegar sólin var sest. Sérfræðingar segja að þetta hafi ekki verið sá besti japanski matur......en mér fannst hann nú bara ágætur. Er nú orðin nokkuð góð með prjónana og farin að þekkja muninn á Kínverskum, Thailenskum, Kórönskum og Japönskum mat ......og svei mér þá ef það eru ekki farin að vaxa svört hár á kollinum á mér og ég er farin að hneigja mig meira en vanalega.
Talandi um ferðir þá er verið að skipuleggja ferðalag til Parisar um helgina.......rétt að kíkja á turninn og fá sér gómsætan eftirrétt að hætti fransmanna fyrir peninga sem mundu ekki einu sinni duga til að fljúga fram og tilbaka milli Akureyrar og Reykjavíkur.......................skammastu þín Flugfélag Íslands.
Svo er nú stór dagur á miðvikudaginn þegar múttan mín verður 65 ára.........verð nú alveg með í anda að borða góða matinn og hitta allt fólkið mitt ;)
Well esskurnar mínar.......lifið heil

2 comments:

Anonymous said...

Æði, æði æði og meira æði, agalega hljómar þetta nú allt saman vel.....Hvað eru þið mörg í bekk, skipting kynja og aldurs og allt það;) París....dásemdarlíf:)
knús Dagný

Kristin said...

úff... mikið var ég nú ánægð að sjá loks nýja færslu á síðunni þinni... dáldið langt á milli en greinilega nóg að gera hjá þér sem er frábært;) Náttla bara mikil snilld að geta skroppið til Parísar um helgi eða svo... ég dauðöfunda þig;) hihi... gangi þér áfram svona vel og skemmtu þér! knús frá Stínunni