Sunday, 15 July 2007

I do

Þá eru Nicole og David orði hjón og kyssast upp á títiprjón! Þessi þriðja ferð mín til Boston var alveg rosaleg. Mögnuð blanda af verslunarferðum á daginn og socialiseringu á kvöldin. Það verður erfitt að toppa þessa ferð.
Gistihúsið sem við vorum á og óhætt er að mæla með er hægt að skoða hér: http://taylorhouse.com/ , en húsið er hreint listaverk sem hægt er endalaust að skoða og búið er að pæla í öllum smáatriðum. Ættingar og vinir brúðhjónanna tóku ofsalega vel á móti okkur hvert sem við fórum og eru höfðingar heim að sækja. Ætla að reyna að setja inn örfáar myndir úr ferðinni en á von fullt af myndum sem ég fæ hjá Valda og Völvu.


Nicole gæsuð ;)
Valva, Dagný og ég alveg að fíla okkur í botn með demantana og skartið.


Íslensku pæjurnar: Dagný, Vala, Nicole, ég og Valva. Á myndina vantar Þóru. Eins og sjá má var ég ekki búin að fjárfesta í dýra og fína dag og næturkreminu frá L´Occitane þegar þessi mynd var tekin !!! ....smá gljái. Myndin er tekin í garðveislu heima hjá Mary, mömmu Davids.

Brúðhjónin í rósagarðinum ásamt foreldrum og svaramönnum.

Hér má sjá brot af húsi og garði pabba Davids en hann bauð í sundlaugarparty á sunnudeginum eftir brúðkaupið..............þetta var magnaður dagur!

No comments: