Jæja mín kæru.
Þá er að fara að pakka fyrir THE WEDDING í Ameríku. Er farin að hlakka rosalega til.........öööö........ réttara væri að segja ég er búin að hlakka til í marga mánuði! Planið er að við Dagný og Valva hittum á Nicole verðandi brúði (hmmmm hér er brúður um brúði frá brúði til brúðar???) á þeim merkisdegi 4.júlí sem er þjóðhátíðardagur US and A búa eins og Borat segir (fyrir utan það að Dagný og Arne eiga 9 ára brúðkaupsafmæli þennan dag....omg). Ég efast um að við verðum með einhverja gæsun að íslenskum sið.......en hver veit. Á föstudeginum verður svo rehearsal dinner heima hjá mömmu Davids þar sem boðið verður upp á grilluð íslensk lambalæri. Laugardagurinn 07.07.07 er svo stóri dagurinn þar sem athöfnin fer fram í rósagarði í Boston borg og veislan verður í kastala. Á sunnudeginum verður svo slappað af við sundlaugina heima hjá pabba Davids þar sem boðið verður upp á hin þekktu Boston rif og eitthvað til að skola þeim niður með. Undirbúningur minn fyrir brúðkaupið gengur vel ;) var að koma úr french lökkun í morgun og ég er búin að leggja mig alla fram við að vinna í brúnnkunni minni þar sem veðrið í Reykjavík er búið að vara svakalega gott.....í 4 daga!!!! Það er búið að vera svo gott veður að ég finn mig knúna til að skrifa e-ð um það. Magnað max eins og Markús bróðir segir.
Af London málum er það að frétta að Kristín Björg Lundúnarbúi og dásemdar manneskja er að fara að skoða íbúð fyrir mig annað kvöld. Ég held að sú íbúð gæti orðið mín......já held það bara. Kristín á meira en hrós skilið fyrir að nenna að stand í þessari íbúðar leit fyrir mig, algjör snillingur. Jæja nóg í bili over and out
Monday, 2 July 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Góða ferð elsku vinkona;) hlakka til að sjá þig á ak;)
Ja sjaumst a morgun Sonja. Leggjum af stad fra NY kl. 11 og verdum komin upp ur 3 svo vid sjaumst a Tayolorhouse tegar tu maetir a svaedid. Er buin ad vera a rembast i brunkunni = solbruni a oxlum, baki og maga!!!!
Valva
Post a Comment